Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá ágúst, 2010

Fyrsti Rauðskinnufundur vetrarins

ágúst 30th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Fyrsti fundur Rauðskinna (stelpur 10-12 ára) eftir sumarfrí verður á morgun, þriðjudag, klukkan 18-19:15, alveg eins og í fyrra. Mikið verður sprellað og hópurinn hristur almennilega saman fyrir veturinn:) Best er að sem allra flestar mæti sem ætla að vera með í vetur svo við gerum okkur grein fyrir stærð sveitarinnar og getum farið að huga að flokkaskiptingu.

Sjáumst eiturhressar á morgun,

Árný, Birna og Kolfinna sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off

Vel heppnað kynningarkvöld

ágúst 26th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Í gær var margt um manninn og mikið fjör í Hraunbyrgi! Gífurlegt magn af pylsum rann ljúflega niður í spennta núverandi og tilvonandi skáta og foreldra þeirra. Hoppukastalar og leiktæki vöktu mikla lukku og eftirvænting ríkti fyrir hinu skemmtilega starfsári sem er framundan.

Fundir hefjast mánudaginn 30. ágúst, og fundartíma má sjá hér hægra megin á síðunni. Hægt er að skrá sig í skátana á skrifstofunni, sem verður opin á meðan á fundum stendur.

Óskilamunir frá Vormóti og útilífsnámskeiðum sumarsins eru í Hraunbyrgi, og er ennþá hægt að koma við og líta á þá.

Sjáumst í næstu viku!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Kynningarkvöld í Hraunbyrgi

ágúst 18th, 2010 by Una Guðlaug Sveinsdóttir

Miðvikudaginn 25. ágúst ætla Hraunbúar að kynna skátastarf vetrarins. Fjörið hefst klukkan 18:00 í Hraunbyrgi. Boðið verður upp á pylsur, djús og kaffi. Einnig verða hoppukastali og leiktæki á svæðinu og klifurveggurinn verður opinn. Sveitarforingjar verða á staðnum til að kynna dagskrá vetrarins.

Óskilamunir frá sumrinu verða á borði og viljum við hvetja alla til að kíkja á þá.

Sjáumst á miðvikudaginn!

Flokkur: Viðburðir | Comments Off

Skátastarfið fer að hefjast

ágúst 17th, 2010 by Smári Guðnason

Nú styttist óðfluga í að skátastarfið hefjist aftur á nýjan leik. Kynningarkvöld verður haldið miðvikudaginn 25. ágúst í Hraunbyrgi. Nánari upplýsingar um upphaf starfsins og kynningarkvöldið eru væntanlegar á næstu dögum.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Fréttir af Kilke-förum

ágúst 2nd, 2010 by Smári Guðnason

Tölvuálfar báðu Kilkefara um að senda okkur smá fréttir af og til. Hér kemur fyrsta fréttin.

Hópurinn hittist á Keflavíkurflugvelli árla þriðjudagsmorguns og vélin fór i loftið kl 8. Við lentum í Helsinki um hálf þrjú á finnskum tíma og við tók tveggja tíma rútuferð á mótssvæðið. Mótssvæðið er gjörsamlega gerólíkt því sem við eigum að venjast á Íslandi því það er risastór skógur en ekki grasflöt.
Þegar við komum á svæðið hittum vid finnska jafnaldra okkar sem eru með okkur í tjaldbúð. Vid erum mikið búin að vera med þessum krökkum í gegnum mótið og allir eru orðnir vinir.
Dagskráin hefur verið ágæt og verið allt frá því að vera skemmtilegir póstar svo sem vatnadagskra eða þjónustustörf við mótið.
Veðrið hefur verið með besta móti og sól nánast allan tímann. Eini gallinn er allt rykið í loftinu og jarðveginum sem þyrlast upp þegar maður stígur niður sem kemur útaf þurkinum.
Núna eru 2 heilir dagar eftir af mótinu en eftir það förum við í heimagistingu í Helsinki þar sem við fáum að kynnast lífi heimamanna ásamt fleiru.
Öllum líður vel og allir hafa skemmt sér konunglega hér í Finnlandi.
Með bestu kveðju,

Kilke-farar

Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót | Comments Off