Heitt í Finnlandi
Skrifað af Kári Aðalsteinsson þann 29. júlí 2010
Hraunbúarnir 11 sem héldu til Finnlands hafa nú komið sér fyrir á mótssvæðinu, en þau voru með þeim fyrstu á staðinn (Evo). Tjaldsvæðið er svolítið öðruvísi en við eigum að venjast, en tjaldað er á skógarbotni og yfir þeim gnæfa 20 m há tré.
Í gær, fyrsta daginn, var mjög heitt 35 stig. Að sögn Tóta fararstjóra hefur ferðin gengið vel, mótsetningin var í gærkvöldi og formleg dagskrá hefst í dag fimtudag.
Tvær myndir fundust á heimasíðu mótsins þar sem nokkrum Hraunbúmum bregður fyrir að gæða sér á heilgrilluðum grísum í gærkvöldi.
http://www.flickr.com/photos/kilke2010/4836734705
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 29. júlí 2010 kl. 2:55 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.



