júlí 29th, 2010 by Kári Aðalsteinsson
Hraunbúarnir 11 sem héldu til Finnlands hafa nú komið sér fyrir á mótssvæðinu, en þau voru með þeim fyrstu á staðinn (Evo). Tjaldsvæðið er svolítið öðruvísi en við eigum að venjast, en tjaldað er á skógarbotni og yfir þeim gnæfa 20 m há tré.

Í gær, fyrsta daginn, var mjög heitt 35 stig. Að sögn Tóta fararstjóra hefur ferðin gengið vel, mótsetningin var í gærkvöldi og formleg dagskrá hefst í dag fimtudag.
Tvær myndir fundust á heimasíðu mótsins þar sem nokkrum Hraunbúmum bregður fyrir að gæða sér á heilgrilluðum grísum í gærkvöldi.
http://www.flickr.com/photos/kilke2010/4836734705
Flokkur: Almennt |
Comments Off
júlí 27th, 2010 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir

11 Hraunbúar héldu í morgun til Finnlands á skátamót, Mótið er haldið í tilefni 100 ára skátastarfs í Finnlandi og er búist við um 10.000 skátum frá Finnlandi og öðrum löndum.
Eftir skátamótið halda þau til Helsinki og gista þar í þrjár nætur heima hjá finnskum skátum.
Hraunbúar óska þeim góðra ferðar og vonumst við til að heyra meira frá þeim á ferð sinni um Finnland.
Síðu mótsins má sjá hér
Flokkur: Almennt |
Comments Off
júlí 20th, 2010 by Smári Guðnason
Fyrsta skátamót smáþjóðanna í Evrópu, Euro-Mini-Jam var sett á Úlfljótsvatni í gær. Sextíu þátttakendur frá 7 þjóðum mættu til leiks og þar af eru 2 Hraunbúar, þau Kristinn Jón og Sigurrós. Hægt er að fylgjast með mótinu á vefsíðu mótsins, www.eurominijam.com
Flokkur: Skátamót |
Comments Off