Rennblautu en skemmtilegu Vormóti lokið
Skrifað af Smári Guðnason þann 15. júní 2010
70. Vormót Hraunbúa var haldið í Krýsuvík um helgina. Mótið var sett í blíðskaparveðri á föstudeginum og voru um 100 skátar mættir til leiks. Fyrsta veðurspáin fyrir helgina lofaði góðu en þegar kom að mótinu hafði spáin breyst í rigningu og rok á laugardeginum. Fyrstu regndroparnir komu uppúr miðnætti á föstudaginn og vonuðu allir að rigningin myndi ganga fljótt yfir. Þær vonir gengu ekki eftir og rigndi allan laugardaginn. Fyrst um sinn hafði það lítil sem engin áhrif á dagskrá mótsins og héldu skátarnir af stað í spennandi dagskrá þar sem m.a. var boðið uppá sig í Bæjarfelli, Flyfox (svifbraut), þrauta- og metaland, sápurennibraut og vatnasafarí. Þegar líða tók á daginn fóru sum tjöld að leka, föt skátanna orðin blaut og margir orðnir þreyttir á endalausri rigningu. Margir brugðu á það ráð að koma halda kyrru við í kakótjaldinu en þar gátu skátarnir eldað matinn sinn og fengið sér heitt kakó yfir daginn.
Um kvöldmatarleyti var ljóst að ekkert yrði úr varðeld og tónleikum utandyra þannig að ákveðið var að færa kvöldvökuna og tónleikana í kakótjaldið og myndaðist skemmtileg stemming þar. Kvöldvakan heppnaðist vel og töluvert af eldri skátum mættu á kvöldvökuna. Nokkrir Hraunbúar fengu afhent heiðursmerki Hraunbúa fyrir vel unnin störf. Að lokinni kvöldvöku var boðið uppá afmælisköku, pönnukökur og kakó. Þegar mótsgestir voru búnir að fá sér nóg af kræsingum sá Íslenzka sveitin um að halda uppi fjörinu og lagðist það mjög vel í alla aldurshópa. Þó nokkuð margir skátar fóru heim á laugardagskvöldinu vegna kulda og bleytu.
Á sunnudeginum voru veðurguðirnir okkur hliðhollari og þegar skátarnir vöknuðu var hætt að rigna og sólin lék við okkur að hluta til. Asterix leikarnir fóru fram og einnig Arnarfellshlaupið víðfræga. Mótinu var svo slitið kl 15 og gátu flestir tekið niður þurr tjöld.
Mótsstjórn þakkar öllum fyrir þátttökuna á mótinu og vonar að þátttaka á skátamótum sem þessu muni aukast á næstu árum.
Myndir verða settar á netið fljótlega.
Myndir með frétt: Guðni GíslasonTengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 15. júní 2010 kl. 11:56 f.h. og er skráð í flokkinn Skátamót. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.




