Vormótið að bresta á
Skrifað af Smári Guðnason þann 10. júní 2010
Vormót Hraunbúa hefst á morgun í Krýsuvík. Undirbúningur mótsins er á lokastigi og vonandi eru allir orðnir spenntir fyrir mótinu. Mótssvæðið opnar kl 16 og verður mótið svo sett kl 20. Þátttakendur eru beðnir um að hafa samband við sinn sveitarforingja um hvenær best sé að mæta á svæðið.
Símanúmer sveitarforingja í Hraunbúum:
Drekaskátar – Gunnur: 694 1917, Guðný Björg: 696 2242
Riddarar – Claus: 867 1257, Sigurgeir: 664 0397
Rauðskinnur – María: 848 0042, Kolfinna: 846 5685
Ds. Castor – Dagný: 690 7617, Ragga: 690 3760, Sverre: 690 6274
Vormótssöngurinn er kominn á netið og er hægt að hlusta á hann á vefsíðu Vormótsins – vormot.hraunbuar.is
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 10. júní 2010 kl. 11:51 f.h. og er skráð í flokkinn Skátamót. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


