júní 28th, 2010 by María Björg Magnúsdóttir
Nú er Útilífsskóli Hraunbúa í fullu fjöri. Í næstu viku hefst nýtt námskeið sem endar á einnar nætur útilegu á Hvaleyrarvatni frá fimmtudegi til föstudags. Enn eru nokkur pláss laus og skráning í fullum gangi.
Þetta er góð leið til að kynnast skátastarfi, eignast nýja vini og upplifa ævintýri.

Flokkur: Almennt |
Comments Off
júní 15th, 2010 by Smári Guðnason

70. Vormót Hraunbúa var haldið í Krýsuvík um helgina. Mótið var sett í blíðskaparveðri á föstudeginum og voru um 100 skátar mættir til leiks. Fyrsta veðurspáin fyrir helgina lofaði góðu en þegar kom að mótinu hafði spáin breyst í rigningu og rok á laugardeginum. Fyrstu regndroparnir komu uppúr miðnætti á föstudaginn og vonuðu allir að rigningin myndi ganga fljótt yfir. Þær vonir gengu ekki eftir og rigndi allan laugardaginn. Fyrst um sinn hafði það lítil sem engin áhrif á dagskrá mótsins og héldu skátarnir af stað í spennandi dagskrá þar sem m.a. var boðið uppá sig í Bæjarfelli, Flyfox (svifbraut), þrauta- og metaland, sápurennibraut og vatnasafarí. Þegar líða tók á daginn fóru sum tjöld að leka, föt skátanna orðin blaut og margir orðnir þreyttir á endalausri rigningu. Margir brugðu á það ráð að koma halda kyrru við í kakótjaldinu en þar gátu skátarnir eldað matinn sinn og fengið sér heitt kakó yfir daginn. Lesa alla frétt »
Flokkur: Skátamót |
Comments Off
júní 10th, 2010 by Smári Guðnason
Vormót Hraunbúa hefst á morgun í Krýsuvík. Undirbúningur mótsins er á lokastigi og vonandi eru allir orðnir spenntir fyrir mótinu. Mótssvæðið opnar kl 16 og verður mótið svo sett kl 20. Þátttakendur eru beðnir um að hafa samband við sinn sveitarforingja um hvenær best sé að mæta á svæðið.
Símanúmer sveitarforingja í Hraunbúum:
Drekaskátar – Gunnur: 694 1917, Guðný Björg: 696 2242
Riddarar – Claus: 867 1257, Sigurgeir: 664 0397
Rauðskinnur – María: 848 0042, Kolfinna: 846 5685
Ds. Castor – Dagný: 690 7617, Ragga: 690 3760, Sverre: 690 6274
Vormótssöngurinn er kominn á netið og er hægt að hlusta á hann á vefsíðu Vormótsins – vormot.hraunbuar.is
Flokkur: Skátamót |
Comments Off