Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Vorstarfi Rauðskinna lokið

Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 13. maí 2010

Lokafundur Rauðskinna í vor var síðasta þriðjudag. Við grilluðum pylsur yfir eldi og fórum í fullt af fjörugum leikjum á Víðistaðatúni. Í lokin voru svo afhentar perlur fyrir maímánuð ásamt því að stelpurnar fengu flestar gull eða silfurmerki fálkaskáta fyrir frábæra frammistöðu í vetur.

Við viljum þakka stelpunum öllum fyrir mjög góðan vetur, þær hafa mætt ógnar vel og staðið sig með stakri prýði og eiga hrós skilið fyrir það. Við hlökkum til að sjá þær allar aftur í haust svo við getum haldið þessu skemmtilega skátastarfi áfram næsta vetur:)

Sjáumst svo eiturhressar á Vormótinu, 11.-13.júní. Skráning stendur ennþá yfir á vormot.hraunbuar.is, hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst. Ef einhverjar spurningar varðandi mótið vakna (eða starfið næsta haust, þegar kemur að því) ekki hika við að hafa samband, gegnum tölvupóst eða símleiðis.

María (maria@hraunbuar.is) og Kolfinna (kolfinna@hraunbuar.is)

Sveitaforingjar Rauðskinna


Tengdar færslur:

  1. Skipulagning vetrarstarfs Rauðskinna – TyrkjaGuddna
  2. Sundfundur Rauðskinna
  3. Sveitarfundur Rauðskinna og Tyrkna-Guddna
  4. Ljósmyndamaraþon Rauðskinna
  5. Stuttmyndagerð

Þessi grein var skrifuð þann 13. maí 2010 kl. 11:16 f.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.