Rauðskinnufundur
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 3. maí 2010
Minnum allar Rauðskinnur á fundinn á morgun, en hann er sá næst síðasti fyrir sumarfrí. Síðasti fundurinn verður síðan þriðjudaginn 11.maí. Planið er að halda áfram með undirbúninginn fyrir Vormótið, svo það er um að gera að mæta til að vera með allt á hreinu:) Skráning á mótið er hafin eins og sjá má í fréttinni hér fyrir neðan, og hvetjum við allar Rauðskinnur (og aðra Hraunbúa) til að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram á vormot.hraunbuar.is og þar er einnig að finna allar upplýsingar um mótið. Einnig hvetjum við fjölskyldur Rauðskinna til að taka helgina frá og vera með okkur í fjölskyldubúðunum.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur.
Sjáumst sprækar á morgun, á slaginu sex – klæddar til útiveru!
Kolfinna (kolfinna(hjá)hraunbuar.is) og María (maria(hjá)hraunbuar.is) sveitaforingjar
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 3. maí 2010 kl. 12:10 e.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


