Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá apríl, 2010

Stefnumótun Hraunbúa

apríl 9th, 2010 by Guðjón Rúnar Sveinsson

Dagana 7. og 8. apríl settist félagsráð niður og hóf stefnumótun fyrir skátafélagið Hraunbúa.

Fyrra kvöldið var óvissuferð en farið var í Skemmtigarðinn í Grafarvogi og þar farið í hópefli og skemmtu menn sér konunglega. Að lokum snæddu menn á grilluðum hamborgurum ásamt léttum eftirrétti.

Seinna kvöldið var sest niður í Hraunbyrgi og farið í svo kallað SVÓT greiningu á skátafélaginu okkar. Miklar umræður spruttu upp og margar góðar hugmyndir. Að sjálfsögðu urðu menn að næra líkama og sál og að þessu sinni var heimagerð (í Hraunbyrgi) pizza en kokkarnir okkar þeir Biggi og Gummi sáu um að næra okkur þessa tvo daga.

Að lokum vill stjórn Hraunbúa þakka þeim sem mættu og tóku þátt í þessari stefnumótun.
Sérstakar þakkir fá að sjálfsögðu kokkarnir Biggi og Gummi og einnig Skemmtigarðurinn þar sem stuðið var fyrra kvöldið.

Lesa alla frétt »

Flokkur: Almennt | Comments Off