70. Vormót Hraunbúa
Skrifað af Smári Guðnason þann 30. apríl 2010
Undirbúningur fyrir 70. Vormót Hraunbúa er nú í fullum gangi og sveitirnar í Hraunbúum farnar að huga vel að mótinu.
Mótið verður haldið helgina 11.-13. júní næstkomandi og er þetta sannkallað afmælismót þar sem að það er það sjötugasta í röðinni og einnig á 85 ára afmæli Hraunbúa.
Upplýsingar um mótið eru á vormot.hraunbuar.is og hjá þínum sveitarforingja.
Verð:
Almennur þátttakandi: 3500 kr.
Vinnubúðir (Rekka- og Róverskátar): 3500 kr. (hægt að sækja um 50% endurgreiðslu innan tveggja vikna frá mótsslitum)
Fjölskyldubúðir: 2500 kr. per tjald (miðað við 2 fullorðna)
Viðbótargjald fyrir 10 ára og eldri: 1000 kr.
Frítt fyrir 9 ára og yngri.
Innifalið í mótsgjaldi er öll dagskrá, tjaldsvæði, kvöldkaffi 2 kvöld, mótsbók og mótsmerki.
Skráning er hafin á vormot.hraunbuar.is!
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 30. apríl 2010 kl. 10:10 f.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


