Rauðskinnufundur á þriðjudaginn
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 25. apríl 2010
Á næsta fundi munum við fókusera á trönubyggingar, en það er liður í að undirbúa Rauðskinnur fyrir Vormót Hraunbúa. Hver veit nema stelpurnar geti smellt saman eins og einni römburólu eins og sjá má á myndinni;) Vormótið verður haldið í Krýsuvík 11.-13.júní næstkomandi – eru ekki allir örugglega búnir að taka helgina frá? Stelpurnar munu einnig fá heim með sér foreldrabréf með nánari upplýsingum um mótið, sem og upplýsingum um lok vetrarstarfsins sem nálgast því miður óðfluga.
Sjáumst eiturhressar á þriðjudaginn!
Kolfinna og María sveitaforingjar
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 25. apríl 2010 kl. 12:46 e.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


