Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá apríl, 2010

70. Vormót Hraunbúa

apríl 30th, 2010 by Smári Guðnason

Undirbúningur fyrir 70. Vormót Hraunbúa er nú í fullum gangi og sveitirnar í Hraunbúum farnar að huga vel að mótinu.

Mótið verður haldið helgina 11.-13. júní næstkomandi og er þetta sannkallað afmælismót þar sem að það er það sjötugasta í röðinni og einnig á 85 ára afmæli Hraunbúa.

Upplýsingar um mótið eru á vormot.hraunbuar.is og hjá þínum sveitarforingja.

Verð:
Almennur þátttakandi: 3500 kr.

Vinnubúðir (Rekka- og Róverskátar): 3500 kr. (hægt að sækja um 50% endurgreiðslu innan tveggja vikna frá mótsslitum)

Fjölskyldubúðir: 2500 kr. per tjald (miðað við 2 fullorðna)
Viðbótargjald fyrir 10 ára og eldri: 1000 kr.
Frítt fyrir 9 ára og yngri.

Innifalið í mótsgjaldi er öll dagskrá, tjaldsvæði, kvöldkaffi 2 kvöld, mótsbók og mótsmerki.

Skráning er hafin á vormot.hraunbuar.is!

Flokkur: Almennt | Comments Off

Sveitarútilega Riddara

apríl 26th, 2010 by Einar Örn Björgvinsson

Helgina  1.-2.  maí verður sveitarútilega Riddara.  Farið verður í Vífilsbúð sem er skátaskáli staðsettur í Heiðmörk skammt frá golfvelli Oddfellow, c.a. 15 mín. akstur frá Hraunbyrgi.

Lagt verður af stað laugardaginn 1. maí kl. 10 frá Hraunbyrgi og komið heim kl. 16.

Kostnaður við ferðina er 1500 kr. og greiðist áður en lagt er af stað.

Búnaðarlisti:

Svefnpoki, koddi, inniskór, skátabúningur og skátaklútur, hlý föt og sokka/ullarsokka, náttföt, húfa, vettlingar, trefill, góða skó, stígvéli/vatnshelda gönguskó, úlpu / stakkur og hlífðarbuxur, vasaljós, skátahníf, tannbustu, tannkrem, einstaklingsbundin lyf.

Farið er fram á að foreldrar keyri frá Hraunbyrgi laugardaginn kl 10 og sæki hópinn á sunndaginn kl. 15.30 . Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að keyra vinsamlegast hafið samband við sveitarforinga.

Claus Hermann Magnússon s. 867-1257
Sigurgeir Ólafsson s. 664-0397

Flokkur: Almennt | Comments Off

Rauðskinnufundur á þriðjudaginn

apríl 25th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Á næsta fundi munum við fókusera á trönubyggingar, en það er liður í að undirbúa Rauðskinnur fyrir Vormót Hraunbúa. Hver veit nema stelpurnar geti smellt saman eins og einni römburólu eins og sjá má á myndinni;) Vormótið verður haldið í Krýsuvík 11.-13.júní næstkomandi – eru ekki allir örugglega búnir að taka helgina frá? Stelpurnar munu einnig fá heim með sér foreldrabréf með nánari upplýsingum um mótið, sem og upplýsingum um lok vetrarstarfsins sem nálgast því miður óðfluga.

Sjáumst eiturhressar á þriðjudaginn!

Kolfinna og María sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off

Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði

apríl 20th, 2010 by Smári Guðnason

Sumardagurinn fyrsti er á fimmtudaginn og að sjálfsögðu tekur skátafélagið virkan þátt í hátíðarhöldunum hér í bæ. Dagskráin hefst á skátamessu í Hafnarfjarðarkirkju og að henni lokinni tekur við skrúðganga yfir á Thorsplan þar sem Björgvin Franz kynnir áfram skemmtilega fjölskyldudagskrá á sviðinu.

Dagskrá
13:00 Skátamessa í Hafnarfjarðarkikju
13:45 Skrúðganga frá Hafnarfjarðarkikju niður á Thorsplan, í miðbæ Hafnarfjarðar

Gengið verður: Upp Lækjargötu, inn Tjarnarbraut, upp Mánastíg, inn Álfaskeið, niður Smyrlahraun, inn Hverfisgötu, niður Linnetsstígur og síðan THORSPLAN

14:00-16:00 Fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjá Hraunbúa

  • Lúðrasveit Tónlistarskóla Hfj.
  • Söngleikjaskólinn
  • Listdansskóli Hafnarfjarðar sýnir nokkra dansa
  • Ívar Helgason
  • John töframaður sýnir töfrabrögð
  • Skátakórinn
  • Lára Rúnarsdóttir spilar og syngur nokkur lög

Skátadagskrá verður á Thorsplani og Leikfélag Flensborgar sér um að koma fólki í sumarskap

Kynnir á sviði er Björgvin Franz Gíslason

Flokkur: Almennt | Comments Off

Næsti Rauðskinnufundur

apríl 18th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Minnum Rauðskinnur á að mæta klæddar fyrir útiveru næsta þriðjudag, og með keppnisskapið í lagi. Höldum einnig áfram að minna á skátaklútana.

Myndin til hægri er tekin í útilegu Rauðskinna í Hverahlíð haustið 2009. Síðan þá hefur sveitin tvöfaldast:)

Sjáumst!

María og Kolfinna sveitaforingjar

Flokkur: Almennt, Rauðskinnur | Comments Off

Rauðskinnur hefja starf eftir páskafrí

apríl 11th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Loksins er komið að því, fyrsti fundur Rauðskinna eftir páskafrí verður næsta þriðjudag kl.18, eins og venjulega. Planið er að halda áfram með verkefni sem við byrjuðum á fyrir páskafrí.

Einnig viljum við minna á að alltaf á að koma í klæðnaði sem hentar fyrir útiveru og að sjálfsögðu með skátaklútinn. Hver veit nema við tökum upp á vatnsrefsingunni fyrir það að gleyma klút á næstu vikum. Og þá yrði refsingin að sjálfsögðu tvöföld þegar foringjar gleyma klútnum;)

Sjáumst sprækar á þriðjudaginn,

Kolfinna og María sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off