mars 21st, 2010 by Smári Guðnason
Skátaþingi 2010, æðsta valdi skátahreyfingarinnar, er nú lokið. Þingið var haldið í Sjálandsskóla nú um helgina og tóku yfir 100 skátar þátt. Margrét Tómasdóttir lét af störfum sem skátahöfðingi og þökkum við henni fyrir vel unnin störf í þágu hreyfingarinnar. Nýr skátahöfðingi var kosinn sl. föstudag og stóð valið á milli tveggja skáta, Braga Björnssonar, aðstoðarskátahöfðingja og Hrólfs Jónssonar. Bragi hlaut 49 atkvæði gegn 48 atkvæðum Hrólfs og var því réttkjörinn skátahöfðingi. Einnig var kjörinn nýr aðstoðarskátahöfðingi og var það Hallfríður Helgadóttir sem hlaut kosningu þar.
Skátafélagið Hraunbúar óskar þeim velfarnaðar í starfi og þakkar Margréti fyrir góð störf.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 20th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á fundi næsta þriðjudag munu Rauðskinnur fara í sund. Mæting er í Hraunbyrgi með sundföt og handklæði á venjulegum tíma og munum við rölta saman á áfangastað. Ekki þarf að koma með pening fyrir sundinu.
Einnig viljum við minna á nýstofnaðan facebook hóp Rauðskinna (skrifið Rauðskinnur í “leit”) sem við hvetjum allar Rauðskinnur til að skrá sig í, svo við getum sent skilaboð og áminningar fyrir fundi og aðra atburði ef það á að taka eitthvað sérstakt með sér. Foreldrar Rauðskinna mega einnig vera með, en þá þarf að láta vita hvaða foreldri maður er þar sem við samþykkjum ekki hvern sem er:)
Sjáumst á þriðjudaginn!
Kolfinna og María sveitaforingjar
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
mars 18th, 2010 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Fundurinn sem átti að vera í kvöld vegna kynningu á alheimsmóti er frestað.
Hann verður næsta miðvikudag (24. mars) kl 20:00 í hraunbyrgi.
Við hvetjum alla áhugasama um að mæta. Æskilegt væri ef að foreldrar skátans gætu einnig séð sér fært að mæta og kynna sér málið.
Næsta Alheimsmót verður haldið í Svíþjóð sumarið 2011. Alheimsmót skáta (World Scout Jamboree) eru mót sem haldin eru fjórða hvert ár og eru opin öllum skátum á aldrinum 14 – 18 ára sem eru í skátabandalögum sem aðild eiga að heimsbandalagi skáta (WOSM). Íslenskir skátar hafa sótt flest Alheimsmót skáta sem haldin hafa verið, fjöldinn hefur verið allt frá einum og upp í á fimmta hundrað skáta.
Þeir skátar sem hafa náð 18 ára aldri eiga einnig möguleika á því að fara á mótið en þá sem starfsmenn.
Nánari upplýsingar verða veittar á kynningunni og við vonumst til að sjá sem flesta.
Síðu mótsins má finna hér.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 15th, 2010 by Gunnur Líf Gunnarsdóttir
Það var svaka fjör hjá drekaskátafundi í dag. Við vorum svo heppin að fá björgunarsveitarkonuna Guðrúnu Þórey í heimsókn til að segja okkur frá starfi Hjálpasveita og hvað hún væri að gera í hjálparsveitinni. Einnig kenndi hún drekaskátunum okkar helstu atriðin í skyndihjálp. Nú eru allir drekaskátar vel færir í að bjarga þeim sem fá skurð eða meiða sig úti. Þeir munu vera ávallt viðbúnir.
Ekki var þó aðeins farið í skyndihjálp á þessum fundi heldur fengu drekaskátarnir einnig að spreyta sig á að búa til súkkulaðiís…. nammi namm! Það gekk misvel en þó var enginn sem fekk vondan ís … því lítið getur klikkað þegar mjólk og súkkulaðisósu er blandað saman!
Þetta var frábær fundur og stóðu skátarnir sig mjög vel.
Skátakveðja
Gunnur Líf og Guðný

Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 14th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á fundi næsta þriðjudag verður ljósmyndamaraþon Rauðskinna. Í tilefni af því þarf hver flokkur að koma með amk eina stafræna myndavél, annaðhvort sína eigin eða fá lánaða hjá einhverjum. Við útskýrum reglurnar betur í byrjun fundarins.
Hvaða flokkur ætli sé bestur?
Hlökkum til að sjá ykkur!
María og Kolfinna sveitaforingjar
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
mars 12th, 2010 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Í fyrrinótt eignaðist Einar Örn starfsmaður Hraunbúa litla stúlku.
Einnig eignaðist Harpa Hrönn fyrrverandi ritari stjórnar litla stúlku seinustu nótt.
Stjórn Hraunbúa óskar þeim báðum og fjölskyldum þeirra innilega til hamingju með stúlkurnar.
Flokkur: Almennt |
Comments Off