Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Alheimsmót skáta í Svíþjóð

Skrifað af Dagný Vilhelmsdóttir þann 11. mars 2010

Alheimsmót skáta (World Scout Jamboree) eru mót sem haldin eru fjórða hvert ár og eru opin öllum skátum á aldrinum 14 – 18 ára sem eru í skátabandalögum sem aðild eiga að heimsbandalagi skáta (WOSM). Íslenskir skátar hafa sótt flest Alheimsmót skáta sem haldin hafa verið, fjöldinn hefur verið allt frá einum og upp í á fimmta hundrað skáta.

Næsta Alheimsmót verður haldið í Svíþjóð sumarið 2011. Næstkomandi fimmtudag, þann 18. mars, verður haldin kynning á Alheimsmóti hér í Hraunbyrgi. Kynningin hefst klukkan 20:00 og hvetjum við alla áhugasama um að mæta. Æskilegt væri ef að foreldrar skátans gætu einnig séð sér fært að mæta og kynna sér málið.

Þeir skátar sem hafa náð 18 ára aldri eiga einnig möguleika á því að fara á mótið en þá sem starfsmenn.

Nánari upplýsingar verða veittar á kynningunni og við vonumst til að sjá sem flesta.

Síðu mótsins má finna hér.


Tengdar færslur:

  1. Gleðilega þjóðhátíð
  2. Alheimsmót
  3. Kynning á Alheimsmóti
  4. Breyttur tími á Alheimsmótskynningu
  5. Gleðilegann þjóðhátí­ðardag

Þessi grein var skrifuð þann 11. mars 2010 kl. 2:28 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.