Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Dagsferð drekaskáta!

Skrifað af Gunnur Líf Gunnarsdóttir þann 3. mars 2010

Kæru foreldrar og forráðamenn drekaskáta

Næstkomandi sunnudag þann 7.mars munu drekaskátar fara í dagsferð eins og til var staðið á áætlun. Því miður náðist ekki að senda miða heim eftir síðasta fund. Það væri gott ef þið mynduð einnig láta orðið berast um dagsferðina ykkar á milli ef ske kynni að ekki allir hafa fengið tölvupóst.

Mæting er klukkan 09:30 í Suðurbæjarlaugina í Hafnafirði.
Farið verður í sund og síðan er tekinn strætó í skátaheimilið Hraunbyrgi þar sem grillaðar verða pylsur, drukkinn svali og farið í leiki.
Dagsferðin kostar 500 krónur. Ferðinni lýkur klukkan 15:00 upp í Hraunbyrgi.

Æskilegt er að skrá skátana í ferðina en hægt er að gera það í síma 694-1917 eða með því að svara þessum tölvupóst (gunnurlif@gmail.com)
Endilega hafið samband ef spurningar vakna.

Með skátakveðju
Gunnur Líf (694-1917) og Guðný


Tengdar færslur:

  1. Dagsferð Drekaskáta
  2. Dagsferð Drekaskáta
  3. Ædol dagsferð
  4. Dagsferð Rauðskinna og Tyrkja-Gudda
  5. Dagsferð aflýst

Þessi grein var skrifuð þann 3. mars 2010 kl. 11:52 f.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.