mars 31st, 2010 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir

Hraunbúar óska öllum gleðilegra páska og minna á að starfið byrjar aftur á ný eftir páskafrí miðvikudaginn 7. mars.
Hlökkum til að sjá alla hressa eftir páskafríið!
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 24th, 2010 by Dagný Vilhelmsdóttir
Á fundi kvöldsins var spiluð félagsvist. Til mikils var að vinna en páskaegg nr. 5 frá Góu voru í verðlaun. Strákarnir voru

í meirihluta á fundinum og spiluðu nokkrir þeirra sem stúlkur. Skemmtilegt er frá því að segja að drengir unnu öll verðlaun, bæði skussa- og sigurverðlaun í báðum flokkum. Skussaverðlaun (rúsínur) hlutu Guðbjartur í drengjaflokki og Vilberg í stúlknaflokki. Sigurverðlaun í drengjaflokki hlaut Gauti en Svanur fékk verðlaunin í stúlknaflokkinum. Svanur og Vilberg spiluðu semsagt með stúlknaspjöld og nutu góðs af.
Fundurinn var sá síðasti fyrir páskafrí. Næsti fundur verður þann 7. apríl.
Sjáumst endurnærð eftir fríið!
Dagný, Ragga og Sverre sveitarforingjar
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 24th, 2010 by Dagný Vilhelmsdóttir

Þá er kynningarfundinum lokið. Hann var lengi að komast í gang en gekk annars vel. Þeir sem ekki sáu sér fært að koma geta nálgast upplýsingarnar hér. Á þessari slóð má einnig finna skráninguna, en hún fer rafrænt fram.
Alheimsmót verður haldið í Svíþjóð sumarið 2011. Alheimsmót skáta (World Scout Jamboree) eru mót sem haldin eru fjórða hvert ár og eru opin öllum skátum á aldrinum 14 – 18 ára sem eru í skátabandalögum sem aðild eiga að heimsbandalagi skáta (WOSM). Íslenskir skátar hafa sótt flest Alheimsmót skáta sem haldin hafa verið, fjöldinn hefur verið allt frá einum og upp í á fimmta hundrað skáta.
Þeir skátar sem hafa náð 18 ára aldri eiga einnig möguleika á því að fara á mótið en þá sem starfsmenn.
Við minnum aftur á síðu mótsins.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 24th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Nú eru Rauðskinnur komnar í páskafrí. Það verður ekki fundur næstu tvo þriðjudaga svo næsti fundur er ekki fyrr en þriðjudaginn 13.apríl.
Það var rosalega gaman á sundfundi í gær og miklir hæfileikar á stökkpallinum í Sundhöllinni komu fram á sjónarsviðið. Það gleymdist einn sundbolur og sjampó í lauginni, en hægt er að nálgast hann í óskilamununum þar. Einnig gleymdust eyrnalokkar í vasa sveitaforingja, sú sem saknar þeirra getur haft samband við sveitaforingja.
Sjáumst eldhressar og endurnærðar eftir páskafrí!
Kolfinna og María sveitaforingjar
Flokkur: Almennt, Rauðskinnur |
Comments Off
mars 23rd, 2010 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Í dag (miðvikudag) kl 20:00 verður kynning á Alheimsmóti.
Við hvetjum alla áhugasama um að mæta. Æskilegt væri ef að foreldrar skátans gætu einnig séð sér fært að mæta og kynna sér málið.
Alheimsmót verður haldið í Svíþjóð sumarið 2011. Alheimsmót skáta (World Scout Jamboree) eru mót sem haldin eru fjórða hvert ár og eru opin öllum skátum á aldrinum 14 – 18 ára sem eru í skátabandalögum sem aðild eiga að heimsbandalagi skáta (WOSM). Íslenskir skátar hafa sótt flest Alheimsmót skáta sem haldin hafa verið, fjöldinn hefur verið allt frá einum og upp í á fimmta hundrað skáta.
Þeir skátar sem hafa náð 18 ára aldri eiga einnig möguleika á því að fara á mótið en þá sem starfsmenn.
Nánari upplýsingar verða veittar á kynningunni og við vonumst til að sjá sem flesta.
Síðu mótsins má finna hér.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 22nd, 2010 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Hraunbúar fara í páskafrí frá 26. mars – 6. apríl, fundir byrja aftur miðvikudaginn 7. apríl.
Flokkur: Almennt |
Comments Off