febrúar 3rd, 2010 by Smári Guðnason
85 ára afmælishátíð Hraunbúa verður haldin sunnudaginn 21. febrúar næstkomandi. Félagið var stofnað þann 22. febrúar árið 1925. Hvetjum alla til að mæta.
Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur.
Flokkur: Viðburðir |
Comments Off
febrúar 2nd, 2010 by Smári Guðnason
Í dag var undirritað samkomulag sveitarfélagsins Voga og skátafélagsins Hraunbúa um að endurvekja skátastarf í Vogunum. Lögð verður áhersla á barna- og ungmennastarf og verður starfsemin rekin undir merkjum Vogabúa. Samkomulagið gildir út árið 2010 og með því er markmiðið að fjölbreytt barna- og ungmennastarf á vegum skáta komist á í Vogum. Skátafélagið Hraunbúar mun standa fyrir reglubundu skátastarfi auk þess að vera með útilífsnámskeið og mun mögulega hafa aðkomu að verkefnum á vegum Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar. Þá munu skátar taka að sér verkefni fyrir sveitarfélagið s.s. að flagga í Aragerði á hátíðisdögum. Skátastarf á sér nokkuð langa sögu í Vogunum, en hefur legið niðri síðustu ár. Með þessu samstarfi Skátafélagsins Hraunbúa og Sveitarfélagsins Voga er blásið nýju lífi í þessar gömlu glæður og markmiðið að skátastarf í Vogum verði lifandi og skemmtilegt á komandi árum.
Flokkur: Almennt, Vogabúar |
Comments Off
febrúar 1st, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á fundinum hjá Rauðskinnum á morgun munum við undirbúa útilegu helgarinnar, við munum meðal annars fara yfir pökkun í bakpoka og samsetningu matseðils fyrir helgarferð. Sérstaklega mikilvægt er að mæta ef ætlunin er að koma með í útileguna, sem verður ein magnaðasta útilega Rauðskinna til þessa:)
Ert ÞÚ búin að skrá þig?
Sjáumst eldhressar á morgun,
Kolfinna og María sveitaforingjar
PS Upplýsingar um útileguna er að finna í eldri frétt, aðeins neðar á síðunn.
Flokkur: Útilegur, Rauðskinnur |
Comments Off