Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Hraunbúadagurinn – 85 ára afmæli

Skrifað af Einar Örn Björgvinsson þann 18. febrúar 2010

Haldið verður upp á 85 ára afmæli skátafélagsins Hraunbúa sunnudaginn 21. febrúar í skátaheimilinu Hraunbyrgi.

Herlegheitin byrja kl. 14.00 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Dagskráin fyrir daginn:

Kl. 14.00 – Götuleikur fyrir alla fjölskylduna
kl. 15.30 – Sveitakeppni í hinum ýmsu skátaleikjum
kl. 17.00 – Kvöldvaka að hætti skáta

Eftir kvöldvökuna verður boðið upp á rjúkandi heitt skátakakó með rjóma og afmælisköku.

Við bjóðum alla skáta, unga sem aldna, fjölskyldur þeirra og vini velkomna að taka þátt í deginum með okkur að hluta til eða allan daginn.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Hraunbúar.


Tengdar færslur:

  1. Afmælið heppnaðist vel

Þessi grein var skrifuð þann 18. febrúar 2010 kl. 5:05 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.