Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Ds. Castor

Skrifað af Ragnheiður Guðjónsdóttir þann 9. febrúar 2010

Helgina 12-14. febrúar verður sveitarútilega Ds.Castor. Útilegan verður haldin í  Lækjarbotnum, skála í eigu skátafélagsins Garðbúa í Reykjavík.

Mæting á föstudeginum kl 20 í Lækjarbotna.

Verð : 3500 kr. innifalið er gisting og matur (kvöldkaffi , morgunmatur og kvöldmatur á laugard)

Skráning fer fram á hraunbuar@hraunbuar.is (fram þarf að koma fullt nafn og að þetta sé skráning í sveitarútilegu Ds. Castor)

Skálinn er um 14 km austur af Reykjavík undir hlíðum Selfjalls ofan við Heiðmörk. Hann er í landi Kópavogs í Lækjarbotnalandi, í um 10 mínútna fjarlægð frá Rauðvatni í  átt að Hellisheiði.

Beygt er til hægri inn afleggjara merktan sumarhús. (við setjum annað hvort kerti eða blöðrur við skiltið)

Smá útbúnaðar listi :)

v  Svefnpoki (dýnur eru á staðnum)

v  Koddaver (hægt er að setja föt í koddaverið til að búa til kodda, sparar mikið pláss)

v  Inniskór (gólfið getur verið mjög kalt)

v  Skátabúningur og skátaklútur

v  Buxur

v  Bolir

v  Peysur

v  Sokkar (nóg af sokkum!)

v  Ullarsokkar / göngusokkar

v  Nærföt

v  Ullarnærföt

v  Hlý náttföt

v  Húfa, vettlingar, trefill

v  Góða skó

v  Úlpa / stakkur og hlífðarbuxur

v  Vasaljós (gott að hafa í myrkrinu úti)

v  Tannbursti, tannkrem

v  Bursti/greiða, þvottapoki

v  Klósettpappír (er til á staðnum)

v  Einstaklingsbundin lyf

Óæskilegt að hafa með sér…

v  Gallabuxur

v  Bómullarsokkar

v Orkudrykkir

v Símar eru leyfilegir en verða teknir ef þeir trufla, svo sem í dagskrá, kvöldvöku eða öðrum viðburðum í útilegunni

sama gildir með Ipod.

Hlakka til að sjá ykkur :D

Ragga    S. 6903760

Dagný   S. 6907617

Sverre   S.6906274


Tengdar færslur:

  1. Skráning á Vormót 2006
  2. Dróttskátaútilega
  3. Dróttskátaútilega
  4. Skráning í útilegu

Þessi grein var skrifuð þann 9. febrúar 2010 kl. 1:05 f.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Ds. Castor. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.

Svaraðu þessari grein!

Þú verður að vera skráður inn til að svara.