Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Ferð á Landsmót finnskra skáta [Af skatar.is]

Skrifað af Jón Þór Gunnarsson þann 9. febrúar 2010

Bandalag íslenskra skáta efnir til ferðar á KILKE, landsmót finnskra skáta, sem verður haldið dagana 28. júlí til 5. ágúst 2010. www.kilke.fi

Fararstjóri í ferðinni er Þórólfur Kristjánsson, skáti í Hraunbúum.snjokall@gmail.com

Þátttakendur þurfa að hafa með sér venjulegan útilegubúnað, tjald, svefnpoka, fatnað o.s.frv.  en áhöld til matargerðar þarf ekki þar sem matur verður eldaður sameiginlega í tjaldbúðunum.

Allir erlendir þátttakendur á mótinu munu vera þar í samstarfi við finnska skáta þannig að sá búnaður sem ekki er tekinn með fæst mögulega að láni hjá Finnum.

Ferðin verður, fyrst og fremst, skipulögð fyrir dróttskáta og rekkaskáta þó eldri skátum sé velkomið að slást í hópinn.

Við gerð fjárhagsáætlunar er gert ráð fyrir að farið verði frá Íslandi beint á mótsstað og frá mótsstað beint heim til Íslands aftur. Finnsku skátarnir bjóða einnig upp á heimagistingu fyrir eða eftir mótið sem hópurinn getur mögulega nýtt sér, en kostnaður við það er ekki inni í fjárhagsáætluninni og mun hópurinn taka ákvörðun um þetta tilboð þegar kostnaður liggur fyrir.

Þátttökugjald er kr. 119.000,- og greiðsist kr. 20.000,- óafturkræft staðfestingargjald við skráningu.
Frestur til að skrá sig til þátttöku er til 20. febrúar 2010.

sjá upprunalega frétt á skatar.is

[caption id="" align="alignleft" width="200" caption="Kilke"]Kilke[/caption]


Tengdar færslur:

  1. Foreldrafundur fyrir Landsmót 2012
  2. Skráning á Landsmót skáta 2012 hafin
  3. Myndband frá landsmóti 2005
  4. Fréttir af Kilke-förum
  5. Landsmót skáta á Akureyri

Þessi grein var skrifuð þann 9. febrúar 2010 kl. 5:21 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.