Vel heppnuð sveitarútilega Rauðskinna
Skrifað af María Björg Magnúsdóttir þann 8. febrúar 2010
Um helgina héldu Rauðskinnur í sveitarútilegu í Lækjarbotna. 31 Rauðskinna mætti og var mikið fjör og mikið brallað, meðal annars fórum við í hike, stórskemmtilegan póstaleik, vígðum nýliðana og héldum rosalega fjöruga og skemmtilega kvöldvöku.
Útilegan var vel heppnuð í alla staði og það voru þreyttar en glaðar stelpur sem fóru heim um hádegið í gær. Mikið var tekið af myndum og verður reynt að koma þeim inn á heimasíðuna sem allra fyrst.
Enn er talsvert eftir af óskilamunum, allt frá sokkum upp í útiskó og bakpoka. Hægt er að vitja óskilamunanna í Hraunbyrgi.
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 8. febrúar 2010 kl. 11:08 f.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.