Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Skátastarf í Vogunum

Skrifað af Smári Guðnason þann 2. febrúar 2010

Í dag var undirritað samkomulag sveitarfélagsins Voga og skátafélagsins Hraunbúa um að endurvekja skátastarf í Vogunum. Lögð verður áhersla á barna- og ungmennastarf og verður starfsemin rekin undir merkjum Vogabúa. Samkomulagið gildir út árið 2010 og með því er markmiðið að fjölbreytt barna- og ungmennastarf á vegum skáta komist á í Vogum. Skátafélagið Hraunbúar mun standa fyrir reglubundu skátastarfi auk þess að vera með útilífsnámskeið og mun mögulega hafa aðkomu að verkefnum á vegum Félagsmiðstöðvarinnar Borunnar. Þá munu skátar taka að sér verkefni fyrir sveitarfélagið s.s. að flagga í Aragerði á hátíðisdögum. Skátastarf á sér nokkuð langa sögu í Vogunum, en hefur legið niðri síðustu ár. Með þessu samstarfi Skátafélagsins Hraunbúa og Sveitarfélagsins Voga er blásið nýju lífi í þessar gömlu glæður og markmiðið að skátastarf í Vogum verði lifandi og skemmtilegt á komandi árum.

Tengdar færslur:

  1. Styrkur frá Velferðarsjóði Barna
  2. Útilífsskólabæklingur
  3. Auglýst eftir starfskrafti
  4. Til foreldra 9 og 10 ára barna
  5. Stefna í­ ví­muvörnum

Þessi grein var skrifuð þann 2. febrúar 2010 kl. 7:42 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Vogabúar. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.

Svaraðu þessari grein!

Þú verður að vera skráður inn til að svara.