Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá febrúar, 2010

Aðalfundi lokið

febrúar 23rd, 2010 by Smári Guðnason

Aðalfundur Hraunbúa fór fram nú í kvöld. Ný stjórn var kosin en nýju stjórnina skipa:

Félagsforingi: Guðjón Rúnar Sveinsson
Aðst. félagsforingi: Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Gjaldkeri: Kári Aðalsteinsson
Ritari: Smári Guðnason
Meðstjórnandi: Þórður Ingi Bjarnason
Meðstjórnandi: Hreiðar Sigurjónsson
Meðstjórnandi: Guðrún Stefánsdóttir

Fráfarandi stjórnarmeðlimir eru Birgir Snær Guðmundsson, Guðmundur Sigurðsson, Sigurjón M. Ólafsson og Harpa Hrönn Grétarsdóttir.

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Hraunbúadagurinn – 85 ára afmæli

febrúar 18th, 2010 by Einar Örn Björgvinsson

Haldið verður upp á 85 ára afmæli skátafélagsins Hraunbúa sunnudaginn 21. febrúar í skátaheimilinu Hraunbyrgi.

Herlegheitin byrja kl. 14.00 og eru allir hjartanlega velkomnir.

Dagskráin fyrir daginn:

Kl. 14.00 – Götuleikur fyrir alla fjölskylduna
kl. 15.30 – Sveitakeppni í hinum ýmsu skátaleikjum
kl. 17.00 – Kvöldvaka að hætti skáta

Eftir kvöldvökuna verður boðið upp á rjúkandi heitt skátakakó með rjóma og afmælisköku.

Við bjóðum alla skáta, unga sem aldna, fjölskyldur þeirra og vini velkomna að taka þátt í deginum með okkur að hluta til eða allan daginn.

Hlökkum til að sjá ykkur,

Hraunbúar.

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Rauðskinnufundur á morgun

febrúar 15th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Á fundinum á morgun munum við halda áfram þar sem frá var horfið á síðasta fundi, svo gott væri ef stelpurnar væru búnar að æfa sig að binda nokkra hnúta heima svo hnútaspjaldagerðin gangi greiðlega fyrir sig.

Einnig viljum við minna á mikilvægi þess að koma í útifötum á hvern fund og í skátabúningi, það er aldrei að vita hvað okkur dettur í hug að gera:)

Sjáumst á morgun,

Kolfinna og María sveitaforingjar

Flokkur: Almennt, Rauðskinnur | Engin svör »

Ferð á Landsmót finnskra skáta [Af skatar.is]

febrúar 9th, 2010 by Jón Þór Gunnarsson

Bandalag íslenskra skáta efnir til ferðar á KILKE, landsmót finnskra skáta, sem verður haldið dagana 28. júlí til 5. ágúst 2010. www.kilke.fi

Fararstjóri í ferðinni er Þórólfur Kristjánsson, skáti í Hraunbúum.snjokall@gmail.com

Þátttakendur þurfa að hafa með sér venjulegan útilegubúnað, tjald, svefnpoka, fatnað o.s.frv.  en áhöld til matargerðar þarf ekki þar sem matur verður eldaður sameiginlega í tjaldbúðunum.

Allir erlendir þátttakendur á mótinu munu vera þar í samstarfi við finnska skáta þannig að sá búnaður sem ekki er tekinn með fæst mögulega að láni hjá Finnum.

Ferðin verður, fyrst og fremst, skipulögð fyrir dróttskáta og rekkaskáta þó eldri skátum sé velkomið að slást í hópinn.

Við gerð fjárhagsáætlunar er gert ráð fyrir að farið verði frá Íslandi beint á mótsstað og frá mótsstað beint heim til Íslands aftur. Finnsku skátarnir bjóða einnig upp á heimagistingu fyrir eða eftir mótið sem hópurinn getur mögulega nýtt sér, en kostnaður við það er ekki inni í fjárhagsáætluninni og mun hópurinn taka ákvörðun um þetta tilboð þegar kostnaður liggur fyrir.

Þátttökugjald er kr. 119.000,- og greiðsist kr. 20.000,- óafturkræft staðfestingargjald við skráningu.
Frestur til að skrá sig til þátttöku er til 20. febrúar 2010.

sjá upprunalega frétt á skatar.is

Kilke

Kilke

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Sveitarútilega Ds. Castor

febrúar 9th, 2010 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Helgina 12-14. febrúar verður sveitarútilega Ds.Castor. Útilegan verður haldin í  Lækjarbotnum, skála í eigu skátafélagsins Garðbúa í Reykjavík.

Mæting á föstudeginum kl 20 í Lækjarbotna.

Verð : 3500 kr. innifalið er gisting og matur (kvöldkaffi , morgunmatur og kvöldmatur á laugard)

Skráning fer fram á hraunbuar@hraunbuar.is (fram þarf að koma fullt nafn og að þetta sé skráning í sveitarútilegu Ds. Castor)

Lesa alla frétt »

Flokkur: Almennt, Ds. Castor | Engin svör »

Vel heppnuð sveitarútilega Rauðskinna

febrúar 8th, 2010 by María Björg Magnúsdóttir

Um helgina héldu Rauðskinnur í sveitarútilegu í Lækjarbotna. 31 Rauðskinna mætti og var mikið fjör og mikið brallað, meðal annars fórum við í hike, stórskemmtilegan póstaleik, vígðum nýliðana og héldum rosalega fjöruga og skemmtilega kvöldvöku.

Útilegan var vel heppnuð í alla staði og það voru þreyttar en glaðar stelpur sem fóru heim um hádegið í gær. Mikið var tekið af myndum og verður reynt að koma þeim inn á heimasíðuna sem allra fyrst.

Enn er talsvert eftir af óskilamunum, allt frá sokkum upp í útiskó og bakpoka. Hægt er að vitja óskilamunanna í Hraunbyrgi.

Flokkur: Rauðskinnur | Engin svör »