janúar 6th, 2010 by Smári Guðnason
Aðalfundur félagsins verður haldinn í febrúar og samkvæmt lögum félagsins þá þurfa lagabreytingatillögur að berast skriflega til stjórnar (stjorn@hraunbuar.is) fyrir 15. janúar.
5.4 Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi og skulu tillögur að lagabreytingum vera skriflegar og berast stjórn fyrir 15. janúar. Laganefnd skili tillögum sí num til lagabreytinga til stjórnar viku fyrir aðalfund og skulu þá framlagðar tillögur liggja frammi í Hraunbyrgi til sýningar. Tveir þriðju hlutar kosningabærra fundarmanna skulu a.m.k. greiða atkvæði með lagabreytingum svo þær öðlist gildi.
Gildandi lög félagsins er hægt að skoða undir Félagið > Lög félagsins
Flokkur: Almennt |
Comments Off
janúar 5th, 2010 by Smári Guðnason
70. Vormót Hraunbúa verður haldið helgina 11.-13. júní nk. Nánari upplýsingar koma hér inn þegar nær dregur.
Flokkur: Viðburðir |
Comments Off
janúar 5th, 2010 by Smári Guðnason
Vormót Hraunbúa verður haldið í 70. skipti helgina 11.-13. júní. Mótið í ár verður með sérstöku hátíðarsniði vegna 85 ára afmælis Hraunbúa. Óskað er eftir áhugasömum einstaklingum í mótsstjórn. Einnig er óskað eftir fólki sem vill taka þátt í undirbúningi fyrir mótið með öðrum hætti. Áhugasamir hafi samband við Smára Guðnason með því að senda tölvupóst á smari@hraunbuar.is eða hringja í síma 846 4578.
Flokkur: Skátamót |
Comments Off
janúar 5th, 2010 by Dagný Vilhelmsdóttir
Gleðilegt nýtt ár.
Fyrsti fundur nýja ársins hjá Ds.Castor verður þann 13. janúar næstkomandi. Þar verður starfið kynnt og rennt yfir dagskrána.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Ragga Og Dagný
Flokkur: Almennt |
Comments Off