Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá janúar, 2010

Aðalfundarboð

janúar 22nd, 2010 by Einar Örn Björgvinsson

Aðalfundur skátafélagsins Hraunbúa verður haldinn:

Þriðjudaginn 23. febrúar kl. 19:00


Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf. og annarra eininga félagsins.
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar.
h) Kosning tveggja varamanna stjórnar.
i) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
j) Kosning þriggja manna í laganefnd.
k) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
l) Önnur mál.

Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á eftirfarandi lagagreinar og vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:

Ingólfur Már Grímsson, s. 898 6268, ingohair@hotmail.com
Jakob Guðnason s. 823 5147, jakob@hraunbuar.is
Þórólfur Kristjánsson, s. 660 0301, toti@hraunbuar.is

Skv. lögum félagsins hefur sá atkvæðisrétt sem uppfyllir eftirfarandi ákvæði:

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 15 ára og eldri. Forráðamaður (aðeins einn) skáta 15 ára og yngri hefur kosningarétt í hans stað. Árgjöld þurfa að vera í skilum til að fá að kjósa.

3.6 Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum, félagsforingja, aðstoðarfélagsforingja, ritara, gjaldkera og 3 meðstjórnendum. Félagsforingi, aðstoðarfélagsforingi, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Stefnt skal að því að jafnan sé minnst einn stjórnarmanna kjörinn úr hópi forráðamanna starfandi skáta undir 15 ára aldri.

3.7 Ef stjórnarmeðlimur óskar eftir því að víkja úr stjórn vegna óviðráðanlegra ástæðna tekur fyrsti varamaður sæti í stjórn og annar varamaður ef annar þarf að víkja. Varamaður tekur ávallt sæti meðstjórnenda nema full sátt sé um annað í stjórn. Víki þrír eða fleiri úr stjórn skal boða til félagsfundar.

3.8 Verksvið stjórnar eru fjármál, húsnæðismál, umsjón með eigum félagsins, svo og öðru því sem þarf til að tryggja öfluga starfsemi félagsins í samvinnu við foringjaráð félagsins.

Boðið verður upp á kaffi og með því.

Með von um góða mætingu

Stjórn Hraunbúa

Flokkur: Almennt | Comments Off

Hvert verður þemað í félagsútilegunni?

janúar 20th, 2010 by María Björg Magnúsdóttir

Kæru Hraunbúar

Hér á síðunni stendur yfir kosning um þemað í félagsútileguna. Eins og þið sjáið eru þetta allt skemmtileg og spennandi þemu og verður gaman að sjá hvert þeirra mun bera sigur úr býtum.

Ert ÞÚ búin/n að kjósa?

Flokkur: Almennt | Comments Off

Næsti fundur Ds.Castor

janúar 19th, 2010 by Dagný Vilhelmsdóttir

Á fundinum á morgun ætlum við að vera útivið og biðjum við því alla að koma vel klædda. Við minnum einnig á Pollux fund klukkan 18:30 sem flokksforingjar eiga að mæta á.

Sjáumst hress og kát,

Dagný, Ragga og Sverre

Flokkur: Almennt | Comments Off

Næsti Rauðskinnufundur

janúar 18th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Á fundinum á morgun ætlum við að vera úti mest allan tímann svo allar verða að vera klæddar fyrir útiveru:)

Sjáumst sprækar,

Kolfinna og María sveitaforingjar

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off

Skátastarfið hefst á ný 11. – 14. janúar

janúar 11th, 2010 by Einar Örn Björgvinsson

Skátastarfið hjá öllum sveitum hefst á ný nú eftir áramót 2. vikuna í janúar, 11. – 14. janúar. 

Hægt er að sjá fundatíma allra sveita hér til hægri á heimasíðu Hraunbúa.

Við minnum á breyttan á fundartíma Riddara en þeir hittast á miðvikudögum kl. 18-19:15.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Starfið hjá Rauðskinnum á nýju ári

janúar 10th, 2010 by María Björg Magnúsdóttir

Fyrsti fundur vetrarins hjá Rauðskinnum verður núna á þriðjudaginn, 12. janúar, á sama tíma og venjulega, frá kl. 18-19:15.

Við minnum á að það er mikilvægt að mæta klædd eftir veðri!

Kær kveðja, María og Kolfinna sveitarforingjar

Flokkur: Almennt | Comments Off