Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Rauðskinna – Indíánaþema :)

Skrifað af María Björg Magnúsdóttir þann 27. janúar 2010

Kæru foreldrar/forráðamenn og skátar

Helgina 5.-7. febrúar verður sveitarútilega Rauðskinna. Að þessu sinni liggur leiðin í Lækjarbotna, skála í eigu skátafélagsins Garðbúa í Reykjavík. Skálinn er um 14 km austur af Reykjavík undir hlíðum Selfjalls ofan við Heiðmörk. Hann er í landi Kópavogs í Lækjarbotnalandi, í um 10 mínútna fjarlægð frá Rauðvatni í  átt að Hellisheiði.

Greiðslum og skráningum í útileguna þarf að vera lokið fimmtudagskvöldið 4. febrúar. Útilegugjaldið er 3000 kr.

Vegna rúmlega tvöföldunar sveitarinnar síðustu mánuði eru ennþá margar stelpur óvígðar, og ætlum við að bæta úr því þessa helgi. Á laugardeginum verður hátíðleg vígsluathöfn, en við hana fá nýliðarnir skátaklúta, ásamt merki Hraunbúa og Rauðskinna til að sauma í skátapeysuna sína. Með þessu bréfi fylgir vígslugrunnur, en það eru ýmsar upplýsingar sem skátar þurfa að kannast við til að geta vígst. Það þarf alls ekki að kunna heftið utanað, bara að kannast við það sem í því stendur til þess að vita um hvað skátahreyfingin snýst.

Mæting er við skilti Skógræktarfélags Kópavogs (beygt er inn afleggjarann að skálanum út frá Suðurlandsvegi) klukkan 20:00 föstudaginn 5.febrúar, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 7.febrúar. Við ætlum að labba frá skiltinu að skálanum svo það er mikilvægt að skátarnir séu almennilega klæddir og geti gengið með allan farangurinn sinn.

Gott væri ef foreldrar eða skátarnir hefðu samband sín á milli og sameinuðu í bíla til að minnka umstangið sem mest J Foreldrasímaskrá Rauðskinna fylgir með.

Kostnaður: Útilegugjald verður 3000 kr. og er innifalið í því gjald fyrir skálann (2000 krónur á mann), allur matur (nema morgunmatur) og annar sameiginlegur kostnaður. Gjaldið má greiða á skrifstofu Hraunbúa á opnunartíma en með því að borga skrá skátarnir sig í útileguna. Greiðslum/skráningum í útileguna þarf að vera lokið fimmtudagskvöldið 4. febrúar, en það er vegna þess að á föstudagsmorgninum förum við í búðina og kaupum mat miðað við skráningarfjölda. Best væri ef stelpurnar kæmu með morgunmat sem þarf ekki að vera geymdur í kæli, en kæliaðstaða er mjög lítil og einungis er pláss fyrir sameiginlega matinn þar. Af eigin reynslu höfum við verið með jógúrt og safa í nesti á stað þar sem ekki var kælir og kom það ekki að sök.

Útbúnaður: Útbúnaðarlisti fylgir með þessu bréfi og verður hann einnig settur á vefsíðu skátafélagsins. Mikilvægt er að stúlkurnar mæti vel klæddar til útivistar og með nóg af auka hlýjum fötum, í góðum skóm og með hlífðarföt, því farið verður í hike (gönguferð). Einnig þurfa þær að hafa með sér lítinn bakpoka fyrir hikeið og hitabrúsa fyrir kakó. Það á að mæta með skátaklútinn og með skátapeysu,  bol eða skyrtu. Nýliðar fá afhentan skátaklút við hátíðlega vígsluathöfn í útilegunni.

Bannlisti: gallabuxur og bómullarsokkar eru ekki vel séðar. GSM- símar og önnur raftæki (nema myndavélar og vasaljós) eiga ekki erindi í útileguna, en hægt verður að ná í sveitarforingja í síma ef þörf krefur. Einnig er allt gos, snakk og nammi bannað. Þó er leyfilegt að taka með sér plötu af hreinu súkkulaði í hike-nesti.  Útilegan verður klukkulaus, svo armbandsúr eru einnig á bannlistanum að þessu sinni.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vaknaJ

Kolfinna Snæbjarnardóttir (kolfinna(hjá)hraunbuar.is, s.8465685)

María Björg Magnúsdóttir (maria(hjá)hraunbuar.is, s.8480042)

Útbúnaðarlisti Rauðskinna (til viðmiðunar)

v  Bakpoki

Svefnpoki (dýnur eru á staðnum)

v  Koddaver (hægt er að setja föt í koddaverið til að búa til kodda, sparar mikið pláss)

Inniskór (gólfið getur verið mjög kalt)

v  Skátabúningur og skátaklútur

v  Buxur

v  Bolir

v  Peysur

Sokkar (nóg af sokkum!)

v  Ullarsokkar / göngusokkar

v  Nærföt

v  Ullarnærföt

v  Hlý náttföt

v  Húfa, vettlingar, trefill

Góða skó til að ganga í

v  Úlpa / stakkur og hlífðarbuxur

v  Lítill bakpoki fyrir HIKE

Hitabrúsi eða vatnsflaska

v  Vasahnífur (ekki nauðsyn)

Vasaljós (gott að hafa í myrkrinu úti)

v  Stílabók, skriffæri, spil

v  Eldspýtur (ekki nauðsyn)

v  Hike nesti (hreint súkkulaði)

Morgunmatur (fyrir báða dagana)

v  Tannbursti, tannkrem

v  Bursti/greiða, þvottapoki

v  Klósettpappír (er til á staðnum)

v  Einstaklingsbundin lyf

Óæskilegt að hafa með sér…

v  Gallabuxur

v  Bómullarsokkar

v  GSM-símar

v  Rafmagnstæki svo sem klukkur

v  Nammi, gos og snakk


Tengdar færslur:

  1. Sundfundur Rauðskinna
  2. Keppnin ógurlega
  3. Sveitarfundur Rauðskinna-Tyrkjagudda!
  4. Sveitarútilega Raudskinna og Tyrkja Gudda
  5. Rauðskinnur

Þessi grein var skrifuð þann 27. janúar 2010 kl. 10:04 f.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.

Eitt svar við “Sveitarútilega Rauðskinna – Indíánaþema :)”

  1. Sveitarútilega Rauðskinna - Skátafélagið Hraunbúar - fyrir hafnfirska æsku skrifaði:

    [...] Nánari upplýsingar hér. [...]

Svaraðu þessari grein!

Þú verður að vera skráður inn til að svara.