Frístundabíllinn
Skrifað af Einar Örn Björgvinsson þann 27. janúar 2010
Nú er að hefjast metnaðarfullt samfélagsverkefni í Hafnarfirði sem ber vinnuheitið FRÍSTUNDABÍLLINN. Um er að ræða tilraunaverkefni sem lýkur 31. maí 2010 og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið sem ráðast mun einkum af þeim móttökum sem Frístundabíllinn hefur fengið. Til að gera þetta að verkefni mögulegt hafa eftirtalin fyrirtæki styrkt framkvæmd þess: Alcan á Íslandi, N1, Hópbílar og Fjarðarkaup, allt fyrirtæki sem hafa dyggilega stutt hafnfirsk íþrótta- og tómstundamálefni, auk Hafnarfjarðarbæjar sem veitir verkefninu afar þýðingarmikinn stuðning.
Megintilgangurinn með verkefninu að veita örugga og góða akstursþjónustu sem tekur mið af frístundastarfi í Hafnarfirði fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-20 ára í tæpa 6 tíma á dag, frá kl.15.40 til kl.21.20 alla virka daga. Tímatafla Frístundabílsins miðast við að meginþorri íþrótta- og tómstundastarfs fari fram innan þessa tímaramma og er leiðakerfið hannað með hliðsjón af staðsetningu tómstundastarfsemi víðs vegar um bæinn. Akstur með Frístundabílnum er þó ekki bundinn við íþrótta- og tómstundastarf heldur stendur þjónustan öllu fólki á framangreindum aldri til boða .
Bænum er skipt niður í fjögur svæði sem þjónustuð verða með 4 bílum á 20 mínútna fresti með skiptistöð við íþróttahúsið Strandgötu. Ekið verður um öll stærstu hverfi bæjarins. Í bílunum verður auk bílstjóra þjónustufulltrúi sem mun gæta þess að allt fari vel fram. Ekið verður inn að öllum tómstunda- og íþróttasvæðum bæjarins á þann hátt að leitast verður við að koma í veg fyrir að farþegar þurfi að fara yfir umferðagötur þar sem hægt er að koma því við. Allar strætóstoppistöðvar á þessum leiðum verða nýttar auk nýrra stoppistöðva inni í hverfunum, svokallaðra “Vinkstöðva”. Verð fyrir umrædda þjónustu er kr. 6.000 fram til 31. maí eða sem samsvarar kr. 1.500 á mánuði. Hægt verður að dreifa greiðslum yfir tímabilið.
Sjá nánar á www.fristundabillinn.is
Engar tengdar færslur.
Þessi grein var skrifuð þann 27. janúar 2010 kl. 6:20 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.