Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Aðalfundur

Skrifað af Smári Guðnason þann 27. janúar 2010

Aðalfundur skátafélagsins Hraunbúa verður haldinn:

Þriðjudaginn 23. febrúar kl. 19:00


Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:

a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf. og annarra eininga félagsins.
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar.
h) Kosning tveggja varamanna stjórnar.
i) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
j) Kosning þriggja manna í laganefnd.
k) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
l) Önnur mál.

Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á eftirfarandi lagagreinar og vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:

Ingólfur Már Grímsson, s. 898 6268, ingohair@hotmail.com
Jakob Guðnason s. 823 5147, jakob@hraunbuar.is
Þórólfur Kristjánsson, s. 660 0301, toti@hraunbuar.is

Skv. lögum félagsins hefur sá atkvæðisrétt sem uppfyllir eftirfarandi ákvæði:

3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 15 ára og eldri. Forráðamaður (aðeins einn) skáta 15 ára og yngri hefur kosningarétt í hans stað. Árgjöld þurfa að vera í skilum til að fá að kjósa.

3.6 Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum, félagsforingja, aðstoðarfélagsforingja, ritara, gjaldkera og 3 meðstjórnendum. Félagsforingi, aðstoðarfélagsforingi, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Stefnt skal að því að jafnan sé minnst einn stjórnarmanna kjörinn úr hópi forráðamanna starfandi skáta undir 15 ára aldri.

3.7 Ef stjórnarmeðlimur óskar eftir því að víkja úr stjórn vegna óviðráðanlegra ástæðna tekur fyrsti varamaður sæti í stjórn og annar varamaður ef annar þarf að víkja. Varamaður tekur ávallt sæti meðstjórnenda nema full sátt sé um annað í stjórn. Víki þrír eða fleiri úr stjórn skal boða til félagsfundar.

3.8 Verksvið stjórnar eru fjármál, húsnæðismál, umsjón með eigum félagsins, svo og öðru því sem þarf til að tryggja öfluga starfsemi félagsins í samvinnu við foringjaráð félagsins.

Boðið verður upp á kaffi og með því.

Með von um góða mætingu

Stjórn Hraunbúa

Tengdar færslur:

  1. Aðalfundarboð
  2. Aðalfundur
  3. Aðalfundarboð
  4. Aðalfundur á fimmtudaginn
  5. Breytingar á lögum félagsins

Þessi grein var skrifuð þann 27. janúar 2010 kl. 11:26 f.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Viðburðir. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Þú getur svarað grein, eða elt frá þinni eigin vefsíðu.

Svaraðu þessari grein!

Þú verður að vera skráður inn til að svara.