janúar 27th, 2010 by Einar Örn Björgvinsson
Nú er að hefjast metnaðarfullt samfélagsverkefni í Hafnarfirði sem ber vinnuheitið FRÍSTUNDABÍLLINN. Um er að ræða tilraunaverkefni sem lýkur 31. maí 2010 og verður þá tekin ákvörðun um framhaldið sem ráðast mun einkum af þeim móttökum sem Frístundabíllinn hefur fengið. Til að gera þetta að verkefni mögulegt hafa eftirtalin fyrirtæki styrkt framkvæmd þess: Alcan á Íslandi, N1, Hópbílar og Fjarðarkaup, allt fyrirtæki sem hafa dyggilega stutt hafnfirsk íþrótta- og tómstundamálefni, auk Hafnarfjarðarbæjar sem veitir verkefninu afar þýðingarmikinn stuðning.
Lesa alla frétt »
Flokkur: Almennt |
Comments Off
janúar 27th, 2010 by Smári Guðnason
Aðalfundur skátafélagsins Hraunbúa verður haldinn:
Þriðjudaginn 23. febrúar kl. 19:00
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins:
a) Kosning fundarstjóra og fundarritara.
b) Skýrsla stjórnar.
c) Skýrslur sveita, Ferðbúans ehf. og annarra eininga félagsins.
d) Umræður um framlagðar skýrslur.
e) Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins til umræðu og afgreiðslu.
f) Lagabreytingar.
g) Kosning stjórnar.
h) Kosning tveggja varamanna stjórnar.
i) Kosning tveggja skoðanamanna reikninga.
j) Kosning þriggja manna í laganefnd.
k) Kosning þriggja manna í uppstillingarnefnd.
l) Önnur mál.
Fyrir þá sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða sem varamenn er bent á eftirfarandi lagagreinar og vinsamlegast beðnir um að hafa samband við uppstillingarnefnd, en hana skipa:
Ingólfur Már Grímsson, s. 898 6268, ingohair@hotmail.com
Jakob Guðnason s. 823 5147, jakob@hraunbuar.is
Þórólfur Kristjánsson, s. 660 0301, toti@hraunbuar.is
Skv. lögum félagsins hefur sá atkvæðisrétt sem uppfyllir eftirfarandi ákvæði:
3.3 Kosningarétt hafa starfandi skátar 15 ára og eldri. Forráðamaður (aðeins einn) skáta 15 ára og yngri hefur kosningarétt í hans stað. Árgjöld þurfa að vera í skilum til að fá að kjósa.
3.6 Stjórn félagsins skal skipuð 7 mönnum, félagsforingja, aðstoðarfélagsforingja, ritara, gjaldkera og 3 meðstjórnendum. Félagsforingi, aðstoðarfélagsforingi, ritari og gjaldkeri skulu kosnir sérstaklega en aðrir stjórnarmenn í einu lagi. Stefnt skal að því að jafnan sé minnst einn stjórnarmanna kjörinn úr hópi forráðamanna starfandi skáta undir 15 ára aldri.
3.7 Ef stjórnarmeðlimur óskar eftir því að víkja úr stjórn vegna óviðráðanlegra ástæðna tekur fyrsti varamaður sæti í stjórn og annar varamaður ef annar þarf að víkja. Varamaður tekur ávallt sæti meðstjórnenda nema full sátt sé um annað í stjórn. Víki þrír eða fleiri úr stjórn skal boða til félagsfundar.
3.8 Verksvið stjórnar eru fjármál, húsnæðismál, umsjón með eigum félagsins, svo og öðru því sem þarf til að tryggja öfluga starfsemi félagsins í samvinnu við foringjaráð félagsins.
Boðið verður upp á kaffi og með því.
Með von um góða mætingu
Stjórn Hraunbúa
Flokkur: Almennt, Viðburðir |
Comments Off
janúar 27th, 2010 by Smári Guðnason
Helgina 5.-7. febrúar verður sveitarútilega Rauðskinna. Að þessu sinni liggur leiðin í Lækjarbotna, skála í eigu skátafélagsins Garðbúa í Reykjavík. Skálinn er um 14 km austur af Reykjavík undir hlíðum Selfjalls ofan við Heiðmörk. Hann er í landi Kópavogs í Lækjarbotnalandi, í um 10 mínútna fjarlægð frá Rauðvatni í átt að Hellisheiði.
Nánari upplýsingar hér.
Flokkur: Viðburðir |
Comments Off
janúar 27th, 2010 by María Björg Magnúsdóttir
Kæru foreldrar/forráðamenn og skátar
Helgina 5.-7. febrúar verður sveitarútilega Rauðskinna. Að þessu sinni liggur leiðin í Lækjarbotna, skála í eigu skátafélagsins Garðbúa í Reykjavík. Skálinn er um 14 km austur af Reykjavík undir hlíðum Selfjalls ofan við Heiðmörk. Hann er í landi Kópavogs í Lækjarbotnalandi, í um 10 mínútna fjarlægð frá Rauðvatni í átt að Hellisheiði.
Greiðslum og skráningum í útileguna þarf að vera lokið fimmtudagskvöldið 4. febrúar. Útilegugjaldið er 3000 kr. Lesa alla frétt »
Flokkur: Rauðskinnur |
1 svar »
janúar 25th, 2010 by Vefnefnd Hraunbúa

Nú um áramótin varð Katla Hreiðarsdóttir að hverfa frá sem sveitarforingi Rs. Asterix vegna anna. Smári Guðnason sem sinnt hefur ýmsum foringjastörfum með meiru fyrir Hraunbúa undanfarin ár hefur verið fenginn til að taka við sveitinni.
Tölvuálfar óska Smára góðs gengis með sveitina.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
janúar 24th, 2010 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Skátasveitin Rauðskinnur, fálkaskátar
Dagskrá – vorönn 2012
Sveitaforingjar eru Birna Sigurðardóttir, Marta Grétarsdóttir og Mekkín Barkardóttir.
Fundir eru á þriðjudögum kl. 17:30-18:45.
Mikilvægt er að mæta ávallt klæddur til útiveru.
Janúar
10. janúar – Fundur
17. janúar – Ljósmyndamaraþon
24. janúar – Skemmtiatriði
31. janúar – Heimsókn til Björgunarsveitar Hafnarfjarðar – með fyrirvara um breytingu
Febrúar
3. febrúar – SLEEPOVER í Hraunbyrgi
7. febrúar – Söngfundur
14. febrúar – Baden Powell verkefni
21. febrúar – Kynning á Baden Powell verkefnum. GÓÐVERKAVIKA
28. febrúar – Tröllaleir
Mars
6. mars – Skyndihjálp
10-11 mars – Útilega
13. mars – Ratleikur
20. mars- Útieldun
27. mars – Fundur
Apríl
3. apríl- FRÍ
10. apríl- Fundur
17. apríl- Hópeflisfundur
24. apríl- Útivera – súrra
Maí
1. maí- FRÍ
8. maí – Fundur
15. maí- Valfundur
22. maí- Lokahóf
Júní
8. -10. júní Vormót?
Júlí
20. -29. Júlí Landsmót skáta
Með kveðju frá sveitarforingjum
Birna Sigurðardóttir, birna@hraunbuar.is
Marta Grétarsdóttir, marta@hraunbuar.is
Mekkín Barkardóttir, mekkin@hraunbuar.is
Flokkur: Almennt, Rauðskinnur |
Comments Off