Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Riddara

Skrifað af Einar Örn Björgvinsson þann 24. nóvember 2009

Sveitarútilega Riddara verður haldin helgina 28. – 29. nóvember í Hverahlíð við Kleyfarvatn. Farið verður frá skátaheimilinu kl. 10.00 á laugardagsmorgni og komið heim kl. 15.00 frá Hverahlíð. Hverahlíð er góður upphitaður skáli og vel útbúin.

Verkefni útilegunnar er vígsla inn í riddarasveitina, stutt hike ferð, kvöldvaka, matseld og fl.

Verði er stillt í hóf  eða kr. 1500 og er matur og skálagjald innifalið í því.  Greiða verður í upphafi ferðar og tekið verður á móti greiðslum í skátaheimilinu.

Hvað þarf að hafa meðferðis?

  • Skátaklút
  • Hlý föt
  • Regnföt/hlífðarföt
  • Ullarnærföt og hlýja sokka
  • Húfu, trefil og vettlinga
  • Góða skó
  • Svefnpoka
  • Náttföt
  • Handklæð
  • Tannbursta og tannkrem

Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir föstudaginn 27. nóvember.

Til að spara rútukostnað óskum við eftir að foreldrar sem geta keyrt fram og til baka gefi sig fram, jafnvel þó það sé ekki nema önnur leiðin.

Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við sveitaforingja.

Claus s: 867 1257 og Sigurgeir 664 0397


Tengdar færslur:

  1. Dróttskátaútilega
  2. Sveitarútilega Riddara, 5.-6. nóvember
  3. Dróttskátaútilega
  4. Sveitarútilega Riddara
  5. Félagsútilega Hraunbúa

Þessi grein var skrifuð þann 24. nóvember 2009 kl. 6:45 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.