Jólaball Hraunbúa
Skrifað af Einar Örn Björgvinsson þann 24. nóvember 2009
Jólaskemmtun Hraunbúa verður haldin laugardaginn 12. desember kl. 14 – 16 í skátaheimilinu Hraunbyrgi.
Jólasveinarnir koma ofan úr fjöllunum í heimsókn með glaðning fyrir börnin, spila og syngja jólalög og að sjálfsögðu verður dansað í kringum jólatéð. Tilvalið fyrir alla að mæta, lyfta sér á kreik og ljúka glæsilegu skátaári með glæsibrag.
Allir skátar velkomnir ásamt stór fjölskyldum sínum og vinum.
Sjáumst hress á jólaballinu!
Kveðja,
Hraunbúar

Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 24. nóvember 2009 kl. 7:22 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


