Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá nóvember, 2009

Jólaball Hraunbúa

nóvember 24th, 2009 by Einar Örn Björgvinsson

Jólaskemmtun Hraunbúa verður haldin laugardaginn 12. desember kl. 14 – 16 í skátaheimilinu Hraunbyrgi.

Jólasveinarnir koma ofan úr fjöllunum í heimsókn með glaðning fyrir börnin, spila og syngja jólalög og að sjálfsögðu verður dansað í kringum jólatéð. Tilvalið fyrir alla að mæta, lyfta sér á kreik og ljúka glæsilegu skátaári með glæsibrag.

Allir skátar velkomnir ásamt stór fjölskyldum sínum og vinum.   

Sjáumst hress á jólaballinu!

Kveðja,
Hraunbúar

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Sveitarútilega Riddara

nóvember 24th, 2009 by Einar Örn Björgvinsson

Sveitarútilega Riddara verður haldin helgina 28. – 29. nóvember í Hverahlíð við Kleyfarvatn. Farið verður frá skátaheimilinu kl. 10.00 á laugardagsmorgni og komið heim kl. 15.00 frá Hverahlíð. Hverahlíð er góður upphitaður skáli og vel útbúin.

Verkefni útilegunnar er vígsla inn í riddarasveitina, stutt hike ferð, kvöldvaka, matseld og fl.

Verði er stillt í hóf  eða kr. 1500 og er matur og skálagjald innifalið í því.  Greiða verður í upphafi ferðar og tekið verður á móti greiðslum í skátaheimilinu.

Hvað þarf að hafa meðferðis?

  • Skátaklút
  • Hlý föt
  • Regnföt/hlífðarföt
  • Ullarnærföt og hlýja sokka
  • Húfu, trefil og vettlinga
  • Góða skó
  • Svefnpoka
  • Náttföt
  • Handklæð
  • Tannbursta og tannkrem

Nauðsynlegt er að skrá sig fyrir föstudaginn 27. nóvember.

Til að spara rútukostnað óskum við eftir að foreldrar sem geta keyrt fram og til baka gefi sig fram, jafnvel þó það sé ekki nema önnur leiðin.

Ef einhverjar spurningar vakna hafið samband við sveitaforingja.

Claus s: 867 1257 og Sigurgeir 664 0397

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Rauðskinnufundur á morgun

nóvember 23rd, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Við viljum minna Rauðskinnur á að koma vel klæddar á morgun, því við munum vera úti að brasa með eld og bakstur stóran hluta af fundinum:)

Kolfinna og María

Flokkur: Rauðskinnur | Engin svör »

Rauðskinnufundur

nóvember 16th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Fundurinn á morgun er annar fundurinn í vetur sem Mokkasíur, sveitaráð Rauðskinna, hefur skipulagt. Eftir fundinn síðasta þriðjudag hittust flokksforingjar og aðstoðaflokksforingjar og komu með fullt af hugmyndum um hvað væri hægt að gera. Eftir umræður um kosti, galla og undirbúning var kosið á milli bestu hugmyndanna og varð flugdrekagerð fyrir valinu.

Sjáumst allar á morgun í flugdrekaskapi:)

Kolfinna og María

Flokkur: Rauðskinnur | Engin svör »

Næsti Rauðskinnufundur

nóvember 9th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Á fundinum á morgun er planið að poppa popp yfir eldi. Perlur verða afhentar fyrir októbermánuð og fyrir útilegurnar tvær. Einnig verða flokksforingjar kosnir í þeim flokkum sem ekki hafa flokksforingja, því eftir fundinn verður Mokkasíufundur, þar sem sveitaráðið mun skipuleggja fund. Þess vegna er mjög mikilvægt að allir mæti!

Sjáumst allar á morgun,

María og Kolfinna

Flokkur: Rauðskinnur | Engin svör »

Fjör í Félagsútilegu.

nóvember 7th, 2009 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Mikið fjör er í félagsútilegunni,

Krakkarnir eru í póstaleik og mættu drekaskátarnir  hressir á svæðið í dag.

Kveðja úr Vindáshlíð ;)

IMG_4569

Á kvöldvökunni.

IMG_4629

Krakkarnir hressir í fána.

IMG_4772 Drekaskátarnir mættir á svæðið.

Flokkur: Almennt | Engin svör »