Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Félagsútilega Hraunbúa

Skrifað af Einar Örn Björgvinsson þann 26. október 2009

Félagsútilega Hraunbúa helgina 6. – 8. nóvember.
Nú fer senn að líða að félagsútilegu skátafélagsins Hraunbúa. Útilegan verður haldin dagana 6. – 8. nóvember næstkomandi og þemað er að þessu sinni Grímsævintýri. Félagsútilega er fyrir alla skáta að undanskyldum Drekaskátum*. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Vindáshlíð og gist í skála KFUK. Farið verður með rútum frá skátaheimilinu Hraunbyrgi föstudaginn 6. nóvember, mæting er kl. 18:15 í skátaheimilið og lagt verður stundvíslega af stað kl 19:00. Áætluð heimkoma sunnudaginn 8. nóvember er  kl. 16:00. Gott er að vera búin að snæða kvöldmat fyrir ferðina þar sem einungis verður boðið upp á kvöldhressingu við komuna í Vindáshlíð.

Kostnaður við ferðina er kr. 7500 og er innifalið rútur, gisting, matur og dagskrárefni. 

Bannað er að vera með nammi, gos/orkudrykki og GSM síma þar sem slíkt truflar ferðina!

Ef foreldrar þurfa að hafa samband við börnin yfir helgina er bent á síma 824-0906.

*Drekaskátum verður boðið að koma í dagsferð í félagsútileguna á laugardeginum. Farið verður með rútu frá skátaheimilinu Hraunbyrgi laugardaginn 7. nóvember stundvíslega kl.12:30. Gert er ráð fyrir að skátarnir hafi snætt hádegismat áður en þeir mæta. Áætluð heimkoma er á laugardagskvöldið kl. 22:00.
Kostnaður við dagsferðina er kr. 2.500 og er innifalið rúta, kaffitími, kvöldmatur og dagskrá.

Skráning
Skráning fer fram í skátaheimilinu Hraunbyrgi á skrifstofutíma og á þeim tíma sem skátastarfið er í gangi. Lokaskráning er miðvikudaginn 4. nóvember. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og skrá sig í síma 565-0901 eða 824-0906 og í gegnum tölvupóst á hraunbuar@hraunbuar.is.

Hvað þarf að hafa meðferðis?
 
Skátabúning (skátaklút og bol/skyrtu/peysu)
Hlý föt og föt til skiptana (ekki gallabuxur)
Regnföt/hlífðarföt
Ullarnærföt
Hlýja sokka (helst ekki bómullar)
Húfu, trefil og vetlinga
Góða skó og inniskó
Svefnpoka eða sæng
Náttföt
Handklæði
Tannbursta og tannkrem
Gaman er að hafa myndavél og vasaljós
Búninga í tengslum við þema ferðarinnar (ekki skylda)
 

Fjáröflun
Boðið verður upp á fjáröflun fyrir ferðina þar sem hægt er að safna fyrir ferðakostnaði.  Að þessu sinni verður boðið upp á sérstaklega góðan vestfirskan harðfisk sem er í 250 gr. pokum og selst á kr. 1500. Fyrir hvern seldan poka fær skáti í sinn hlut kr. 500. Hægt er að nálgast pöntunarblað í skátaheimilinu og í gegnum hraunbuar@hraunbuar.is

Við þurfum að vita fjölda pantaðra eininga fyrir FÖSTUDAGINN 30. október (hægt að skila blaðinu eða senda tölvupóst).  Harðfiskurinn verður svo afhentur hérna hjá okkur ÞRIÐJUDAGINN 3. nóvember  milli kl. 17 og 19 og verða þá allar pantanir að vera að fullu greiddar.   Hver skáti verður að rukka inn fyrir sín viðskipti og skila heildargreiðslu til Hraunbúa.   Hraunbúar sjá um að halda eftir hlut skátans sem fer upp í ferðakostnað. Hægt er að greiða á skrifstofunni með peningum eða korti og einnig millifæra á: 0327-26-7029, kt. 640169-7029.

Sjáumst hress, HRAUNBÚAR


Tengdar færslur:

  1. Fjáröflun fyrir Englandsfara
  2. Sveitarútilega Riddara
  3. Dróttskátaútilega
  4. Dróttskátar munið
  5. Dróttskátaútilega

Þessi grein var skrifuð þann 26. október 2009 kl. 6:06 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.