Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Foreldrakvöldvaka Rauðskinna

Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 25. október 2009

Um leið og við viljum þakka Rauðskinnum fyrir alveg frábæra helgi í Hverahlíð viljum við minna foreldra á foreldrakvöldvökuna sem verður næstkomandi þriðjudag á venjulegum fundartíma, kl.18:00.  Fundurinn verður í formi hefðbundinnar skátakvöldvöku, við munum syngja nokkur vel valin skátalög saman og stelpurnar munu flytja skemmtiatriði sem þær sömdu og æfðu um helgina. Í lokin verður boðið upp á kakó og kex. Vonandi sjá sem flestir foreldrar og/eða systkini sér fært að mæta og kynnast skátastarfinu ennþá betur:)

Hlökkum til að sjá ykkur,

María og Kolfinna


Tengdar færslur:

  1. Sundfundur Rauðskinna
  2. Rauðskinnufundur í dag
  3. Rauðskinnufundur á morgun
  4. Rauðskinnur hér og Rauðskinnur þar
  5. Næsti Rauðskinnufundur

Þessi grein var skrifuð þann 25. október 2009 kl. 5:08 e.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.