Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Útilega Rauðskinna í Hverahlíð næstu helgi

Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 18. október 2009

Þá er komið að fyrstu útilegu Rauðskinna í haust en í þetta skiptið liggur leiðin í Hverahlíð við Kleifarvatn.

Mæting er við gatnamótin þegar maður er nýbúinn að keyra Krýsuvíkurveginn framhjá Kleifarvatni, en við þau er skilti sem á stendur Hverahlíð, klukkan 20:00 föstudaginn 23.október, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 25.október. Frá afleggjaranum er um kílómeters ganga að skálanum svo stúlkurnar þurfa að geta haldið á öllum sínum búnaði þessa leið.

Gott væri ef foreldrar hefðu samband sín á milli uppá að sameina í bíla, til að minnka sem mest umstangið.

Ef foreldrabréfið/símaskráin/útbúnaðarlistinn sem stelpurnar fengu með sér heim á síðasta fundi hefur ekki komist til skila, látið okkur þá vita og við munum senda ykkur það sem allra fyrst.

Skráningar og greiðslufrestur er til miðvikudagskvöldsins 21.október. Útilegugjald er 2000 krónur.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna,

Kolfinna Snæbjarnardóttir (kolfinna(hjá)hraunbuar.is, s.846-5685)
María Björg Magnúsdóttir (maria(hjá)hraunbuar.is, s.848-0042)


Tengdar færslur:

  1. Sundfundur Rauðskinna
  2. Nýtt sveitarhróp Rauðskinna
  3. Næsti Rauðskinnufundur
  4. Skráning í útilegu
  5. Rauðskinnufundur

Þessi grein var skrifuð þann 18. október 2009 kl. 6:39 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.