Næsti fundur Rauðskinna
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 12. október 2009
Á fundinum á morgun ætlum við að búa til flokksfána fyrir flokkana þrjá: Spætur, Fjaðrir og Fléttur. Hönnun á fánunum var komin á fullt á síðasta fundi svo við getum hafist handa við að mála strax á morgun.
Það er sniðugt að mæta í fötum sem mega óhreinkast.
Við munum líka dreifa upplýsingabréfi um sveitarútileguna sem verður 23.-25.október.
Sjáumst hressar á morgun,
Kolfinna og María
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 12. október 2009 kl. 5:40 e.h. og er skráð í flokkinn Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


