Niðurgreiðslur Hafnarfjarðarbæjar á félagsgjöldum
Skrifað af Einar Örn Björgvinsson þann 6. október 2009
Til foreldra/forráðamanna
Skátafélagið Hraunbúar innheimtir félagsgjöld fyrir 16 ára og yngri og miðast félagsgjaldið við að niðurgreiðslur berist frá Hafnarfjarðarbæ. Til þess að niðurgreiðslan skili sér til skátafélagsins þurfa foreldrar / forráðamenn að skrá niðurgreiðsluna til Hraunbúa í gegnum íbúagátt bæjarins. Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar sem tekar eru af heimasíðu bæjarins.
Sú breyting hefur orðið á fyrirkomulagi niðurgreiðslunnar að staðfesta þarf þátttöku viðkomandi barns í Íbúagáttinni á hafnarfjordur.is.
Frestur til að staðfesta þátttöku vegna haustannar 2009 er til og með 15. október og en hægt verður að byrja að staðfesta þann 1.október.
Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKIR Í ÍBÚAGÁTTINNI
Ákveðið hefur verið að niðurgreiðsla íþrótta- og tómstundastyrkja fari nú í gegnum íbúagáttina hér á vef Hafnarfjarðarbæjar og er það þáttur í að auka rafræna þjónustu við bæjarbúa. Í sumar fór skráning á leikjanámskeið bæjarins fram með þessum hætti og var mikil ánægja hjá notendum með þá framkvæmd.
HVERJIR EIGA RÉTT Á ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKJUM ?
Hafnarfjarðarbær veitir öllum börnum og unglingum 6-16 ára með lögheimili í Hafnarfirði niðurgreiðslu vegna íþrótta- og tómstundastarfs.
Staðfesta þarf niðurgreiðslu haustannar 2009 fyrir 15. október. Viðkomandi félag fær staðfestingu á niðurgreiðslu í tölvupósti. Með staðfestingu á niðurgreiðslunni í gegnum Íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar hefur forráðamaður barns samþykkt að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna námskeiðs barnsins hjá félaginu.
HVERNIG SÆKI ÉG UM NIÐURGREIÐSLUNA ?
Valinn er hnappurinn NIÐURGREIÐSLUR VEGNA ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTARFS og þá birtast nöfn þeirra barna sem eiga rétt á niðurgreiðslunni. Þegar búið er að velja barn, birtist umsóknareyðublaðið þar sem viðkomandi félag og deild er valið. Í lokin þarf að staðfesta umsóknina. Félagið fær staðfestingu á að viðkomandi forráðamaður hafi staðfest niðurgreiðsluna. Staðfesta þarf niðurgreiðslur fyrir hverja önn.
AÐSTOÐ
Þurfir þú á aðstoð að halda við innskráningu eða notkun á íbúagáttinni þá endilega hafðu samband við þjónustuver bæjarins 585 5500 eða notaðu netspjallið á www.hafnarfjordur.is
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 6. október 2009 kl. 6:41 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


