október 26th, 2009 by Einar Örn Björgvinsson
Félagsútilega Hraunbúa helgina 6. – 8. nóvember.
Nú fer senn að líða að félagsútilegu skátafélagsins Hraunbúa. Útilegan verður haldin dagana 6. – 8. nóvember næstkomandi og þemað er að þessu sinni Grímsævintýri. Félagsútilega er fyrir alla skáta að undanskyldum Drekaskátum*. Að þessu sinni er ferðinni heitið í Vindáshlíð og gist í skála KFUK. Farið verður með rútum frá skátaheimilinu Hraunbyrgi föstudaginn 6. nóvember, mæting er kl. 18:15 í skátaheimilið og lagt verður stundvíslega af stað kl 19:00. Áætluð heimkoma sunnudaginn 8. nóvember er kl. 16:00. Gott er að vera búin að snæða kvöldmat fyrir ferðina þar sem einungis verður boðið upp á kvöldhressingu við komuna í Vindáshlíð.
Kostnaður við ferðina er kr. 7500 og er innifalið rútur, gisting, matur og dagskrárefni.
Bannað er að vera með nammi, gos/orkudrykki og GSM síma þar sem slíkt truflar ferðina!
Ef foreldrar þurfa að hafa samband við börnin yfir helgina er bent á síma 824-0906.
*Drekaskátum verður boðið að koma í dagsferð í félagsútileguna á laugardeginum. Farið verður með rútu frá skátaheimilinu Hraunbyrgi laugardaginn 7. nóvember stundvíslega kl.12:30. Gert er ráð fyrir að skátarnir hafi snætt hádegismat áður en þeir mæta. Áætluð heimkoma er á laugardagskvöldið kl. 22:00.
Kostnaður við dagsferðina er kr. 2.500 og er innifalið rúta, kaffitími, kvöldmatur og dagskrá.
Skráning
Skráning fer fram í skátaheimilinu Hraunbyrgi á skrifstofutíma og á þeim tíma sem skátastarfið er í gangi. Lokaskráning er miðvikudaginn 4. nóvember. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og skrá sig í síma 565-0901 eða 824-0906 og í gegnum tölvupóst á hraunbuar@hraunbuar.is.
Hvað þarf að hafa meðferðis?
Skátabúning (skátaklút og bol/skyrtu/peysu)
Hlý föt og föt til skiptana (ekki gallabuxur)
Regnföt/hlífðarföt
Ullarnærföt
Hlýja sokka (helst ekki bómullar)
Húfu, trefil og vetlinga
Góða skó og inniskó
Svefnpoka eða sæng
Náttföt
Handklæði
Tannbursta og tannkrem
Gaman er að hafa myndavél og vasaljós
Búninga í tengslum við þema ferðarinnar (ekki skylda)
Fjáröflun
Boðið verður upp á fjáröflun fyrir ferðina þar sem hægt er að safna fyrir ferðakostnaði. Að þessu sinni verður boðið upp á sérstaklega góðan vestfirskan harðfisk sem er í 250 gr. pokum og selst á kr. 1500. Fyrir hvern seldan poka fær skáti í sinn hlut kr. 500. Hægt er að nálgast pöntunarblað í skátaheimilinu og í gegnum hraunbuar@hraunbuar.is.
Við þurfum að vita fjölda pantaðra eininga fyrir FÖSTUDAGINN 30. október (hægt að skila blaðinu eða senda tölvupóst). Harðfiskurinn verður svo afhentur hérna hjá okkur ÞRIÐJUDAGINN 3. nóvember milli kl. 17 og 19 og verða þá allar pantanir að vera að fullu greiddar. Hver skáti verður að rukka inn fyrir sín viðskipti og skila heildargreiðslu til Hraunbúa. Hraunbúar sjá um að halda eftir hlut skátans sem fer upp í ferðakostnað. Hægt er að greiða á skrifstofunni með peningum eða korti og einnig millifæra á: 0327-26-7029, kt. 640169-7029.
Sjáumst hress, HRAUNBÚAR
Flokkur: Almennt |
Engin svör »
október 25th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Um leið og við viljum þakka Rauðskinnum fyrir alveg frábæra helgi í Hverahlíð viljum við minna foreldra á foreldrakvöldvökuna sem verður næstkomandi þriðjudag á venjulegum fundartíma, kl.18:00. Fundurinn verður í formi hefðbundinnar skátakvöldvöku, við munum syngja nokkur vel valin skátalög saman og stelpurnar munu flytja skemmtiatriði sem þær sömdu og æfðu um helgina. Í lokin verður boðið upp á kakó og kex. Vonandi sjá sem flestir foreldrar og/eða systkini sér fært að mæta og kynnast skátastarfinu ennþá betur:)
Hlökkum til að sjá ykkur,
María og Kolfinna
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
október 18th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Þá er komið að fyrstu útilegu Rauðskinna í haust en í þetta skiptið liggur leiðin í Hverahlíð við Kleifarvatn.
Mæting er við gatnamótin þegar maður er nýbúinn að keyra Krýsuvíkurveginn framhjá Kleifarvatni, en við þau er skilti sem á stendur Hverahlíð, klukkan 20:00 föstudaginn 23.október, en sækja á stúlkurnar á sama stað á hádegi, kl.12:00, sunnudaginn 25.október. Frá afleggjaranum er um kílómeters ganga að skálanum svo stúlkurnar þurfa að geta haldið á öllum sínum búnaði þessa leið.
Gott væri ef foreldrar hefðu samband sín á milli uppá að sameina í bíla, til að minnka sem mest umstangið.
Ef foreldrabréfið/símaskráin/útbúnaðarlistinn sem stelpurnar fengu með sér heim á síðasta fundi hefur ekki komist til skila, látið okkur þá vita og við munum senda ykkur það sem allra fyrst.
Skráningar og greiðslufrestur er til miðvikudagskvöldsins 21.október. Útilegugjald er 2000 krónur.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna,
Kolfinna Snæbjarnardóttir (kolfinna(hjá)hraunbuar.is, s.846-5685)
María Björg Magnúsdóttir (maria(hjá)hraunbuar.is, s.848-0042)
Flokkur: Almennt, Rauðskinnur |
Engin svör »
október 12th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á fundinum á morgun ætlum við að búa til flokksfána fyrir flokkana þrjá: Spætur, Fjaðrir og Fléttur. Hönnun á fánunum var komin á fullt á síðasta fundi svo við getum hafist handa við að mála strax á morgun.
Það er sniðugt að mæta í fötum sem mega óhreinkast.
Við munum líka dreifa upplýsingabréfi um sveitarútileguna sem verður 23.-25.október.
Sjáumst hressar á morgun,
Kolfinna og María
Flokkur: Rauðskinnur |
Engin svör »
október 6th, 2009 by María Björg Magnúsdóttir
Á fundinum í kvöld voru nýjar Rauðskinnur vígðar og þær eldri endurnýjuðu skátaheitið. Vígslan var samkvæmt gamalli hefð Rauðskinna og er háleynileg athöfn. Þetta var jafnframt afar hátíðlegt og mjög skemmtilegt að vanda. 9 stúlkur voru vígðar inn í sveitina að þessu sinni. Að lokinni vígslu fengu allar Rauðskinnurnar sérstakt token til minningar.
Eftir vígsluna fór svo hver flokkur inn í herbergi og byrjaði að hanna flokksfánann sem verður búinn til á næsta fundi.

Flokkur: Almennt, Rauðskinnur |
Engin svör »
október 6th, 2009 by Einar Örn Björgvinsson
Til foreldra/forráðamanna
Skátafélagið Hraunbúar innheimtir félagsgjöld fyrir 16 ára og yngri og miðast félagsgjaldið við að niðurgreiðslur berist frá Hafnarfjarðarbæ. Til þess að niðurgreiðslan skili sér til skátafélagsins þurfa foreldrar / forráðamenn að skrá niðurgreiðsluna til Hraunbúa í gegnum íbúagátt bæjarins. Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar sem tekar eru af heimasíðu bæjarins.
www.hafnarfjordur.is
Sú breyting hefur orðið á fyrirkomulagi niðurgreiðslunnar að staðfesta þarf þátttöku viðkomandi barns í Íbúagáttinni á hafnarfjordur.is.
Frestur til að staðfesta þátttöku vegna haustannar 2009 er til og með 15. október og en hægt verður að byrja að staðfesta þann 1.október.
Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKIR Í ÍBÚAGÁTTINNI
Ákveðið hefur verið að niðurgreiðsla íþrótta- og tómstundastyrkja fari nú í gegnum íbúagáttina hér á vef Hafnarfjarðarbæjar og er það þáttur í að auka rafræna þjónustu við bæjarbúa. Í sumar fór skráning á leikjanámskeið bæjarins fram með þessum hætti og var mikil ánægja hjá notendum með þá framkvæmd.
HVERJIR EIGA RÉTT Á ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKJUM ?
Hafnarfjarðarbær veitir öllum börnum og unglingum 6-16 ára með lögheimili í Hafnarfirði niðurgreiðslu vegna íþrótta- og tómstundastarfs.
Staðfesta þarf niðurgreiðslu haustannar 2009 fyrir 15. október. Viðkomandi félag fær staðfestingu á niðurgreiðslu í tölvupósti. Með staðfestingu á niðurgreiðslunni í gegnum Íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar hefur forráðamaður barns samþykkt að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna námskeiðs barnsins hjá félaginu.
HVERNIG SÆKI ÉG UM NIÐURGREIÐSLUNA ?
Valinn er hnappurinn NIÐURGREIÐSLUR VEGNA ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTARFS og þá birtast nöfn þeirra barna sem eiga rétt á niðurgreiðslunni. Þegar búið er að velja barn, birtist umsóknareyðublaðið þar sem viðkomandi félag og deild er valið. Í lokin þarf að staðfesta umsóknina. Félagið fær staðfestingu á að viðkomandi forráðamaður hafi staðfest niðurgreiðsluna. Staðfesta þarf niðurgreiðslur fyrir hverja önn.
AÐSTOÐ
Þurfir þú á aðstoð að halda við innskráningu eða notkun á íbúagáttinni þá endilega hafðu samband við þjónustuver bæjarins 585 5500 eða notaðu netspjallið á www.hafnarfjordur.is
Flokkur: Almennt |
Engin svör »