Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá september, 2009

Fyrsti fundur drekaskáta

september 7th, 2009 by Gunnur Líf Gunnarsdóttir

Fyrsti fundur drekaskáta fór af stað með krafti í dag :) Alls mættu 45 hressir drekaskátar til leiks og var mikið fjör í hópnum. Farið var  yfir starf vetrarins og hvað það er að vera skáti. Einnig fórum við í nokkra leiki sem vöktu mikla lukku. Mikil tilhlökkun er fyrir vetrinum og erum við foringjarnir spenntir. Á næsta fundi eru Drekaleikar og verða þeir úti, svo allir að vera klæddir eftir veðri á næsta fundi :)

Skátakveðja

Sunna og Gunnur Líf

Picture 027

Flokkur: Almennt | Comments Off

Fyrsti fundur Rauðskinna

september 2nd, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Fyrsti fundur vetrarins hjá Rauðskinnum var í gær. Skátastarfið var kynnt fyrir stelpunum, þær lærðu 3 hnúta og svo var farið í æsispennandi kappleiki á túninu. Dagskrá vetrarins var dreift, en þeir sem ekki komust geta nálgast hana á næsta fundi, á þriðjudaginn kl.18:00

Sjáumst þá,

Kolfinna og María

Flokkur: Almennt | Comments Off