Breytt dagskrá Rauðskinna
Skrifað af Kolfinna Snæbjarnardóttir þann 15. september 2009
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafa dagsetningarnar á útilegum haustsins breyst, sem og dagsetning foreldrakvöldvökunnar. Nýju dagsetningarnar eru þessar:
Sveitarútilega: 23.-25. október
Foreldrakvöldvaka: 27. október
Félagsútilega: 6.-8. nóvember
Allar aðrar dagsetningar haldast.
Vonandi veldur þetta ykkur ekki neinum óþægindum.
Einnig viljum við minna á að fundurinn á þriðjudaginn eftir viku er sundfundur: Mæting er við Hraunbyrgi á venjulegum fundartíma og munum við rölta saman niður í Sundhöll. Fundurinn er búinn á venjulegum tíma. Stelpurnar þurfa ekki að koma með pening fyrir sundinu.
Sjáumst á eftir,
María og Kolfinna
Tengdar færslur:
Þessi grein var skrifuð þann 15. september 2009 kl. 8:31 f.h. og er skráð í flokkinn Útilegur, Rauðskinnur. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.


