Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá september, 2009

Dróttskáta fundur.

september 30th, 2009 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Dróttskáta fundur í kvöld kl 19.00.

Á fundinum munu flokkarnir vinna saman og skipurlegja flokks dagskránna fyrir veturinn.

Síðan ætlar Smári að  koma og kynna smiðjudaga, sem eru 16 – 18 október.

Allir að mæta og verið stundvís ;-)

Ragga, Dagný og Sverre

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Sveitaforingjar óskast í Drekaskátastarf

september 28th, 2009 by Einar Örn Björgvinsson

Vegna  aukinnar þátttöku auglýsir skátafélagið Hraunbúar eftir tveimur sveitaforingjum í Drekaskátastarf.  Þeir þurfa að vera 20 ára eða eldri, vígðir skátar, áhugasamir um öflugt skátastarf, ábyrgir, hressir og skemmtilegir.

Nánari upplýsingar veitir Einar í síma 897-0647 eða einar(hjá)hraunbuar.is

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Félagskvöldvaka

september 28th, 2009 by Einar Örn Björgvinsson

Félagskvöldvaka.
Fimmtudaginn 1. október verður félagskvöldvaka í skátaheimilinu  Hraunbyrgi kl. 19:30. Félagskvöldvaka er fyrir alla skáta, á öllum aldri, og fjölskyldur þeirra. Drekaskátarnir okkar verða vígðir, Smári ofurskáti og fleiri spila og syngja með okkur og svo er auðvitað kakó og kex á eftir. Allir að mæta, yngri og eldri og vera með. 

Allir velkomnir, líka foreldrar og systkin.
Sjáumst á fimmtudaginn.

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Hjólafundur og Sund

september 23rd, 2009 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Á dróttskáta fundinum í kvöld eiga allir að mæta á hjólum með sundföt.
Hjólað verður úr hraunbyrgi í sundlaugina á Álftanesti.

Mæting stundvíslega 19:00

Kv. Dagný, Sverre og Ragga :)

Ekki gleyma sundfötum og Hjálminum

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Breytt dagskrá Rauðskinna

september 15th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafa dagsetningarnar á útilegum haustsins breyst, sem og dagsetning foreldrakvöldvökunnar. Nýju dagsetningarnar eru þessar:

Sveitarútilega: 23.-25. október

Foreldrakvöldvaka: 27. október

Félagsútilega: 6.-8. nóvember

Allar aðrar dagsetningar haldast.

Vonandi veldur þetta ykkur ekki neinum óþægindum.

Einnig viljum við minna á að fundurinn á þriðjudaginn eftir viku er sundfundur: Mæting er við Hraunbyrgi á venjulegum fundartíma og munum við rölta saman niður í Sundhöll. Fundurinn er búinn á venjulegum tíma. Stelpurnar þurfa ekki að koma með pening fyrir sundinu.

Sjáumst á eftir,

María og Kolfinna

Flokkur: Rauðskinnur, Útilegur | Engin svör »

Dróttskátafundur

september 14th, 2009 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Dróttskátafundur á miðvikudaginn 16. september  kl 19:00 eins og vanalega

Á fundinum verður skipt í flokka, valið nafn á flokkinn og valið flokksforingja. Flokkarnir gera síðan einkenni  fyrir flokkinn sinn

Allir að mæta hressir og með góðaskapið.

Kv. Ragga, Dagný og Sverre :D

Flokkur: Almennt | Engin svör »