Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Hraunbúar á Roverway

Skrifað af Smári Guðnason þann 23. júlí 2009

Nokkrir Hraunbúar eru nú að taka þátt í skátamótinu Roverway sem fer fram hér á Íslandi þessa dagana. Alls eru um 3000 skátar frá Evrópu hér á landi vegna mótsins. Þátttakendur eru í 50 manna sveitum víðsvegar um landið og taka þátt í mismunandi verkefnum fram á föstudag. Skátar úr Rs. Asterix eru nú að labba Laugaveginn og nokkrir skátar úr Rs. Trail eru í Skaftafelli og löbbuðu á Hrútfjallstinda í gær. Einnig eru nokkrir Hraunbúar í öðrum verkefnum fyrir mótið. Hápunktur mótsins er svo á Úlfljótsvatni frá föstudegi til þriðjudags en þá koma allir 3000 skátarnir saman og þar verður ýmis skemmtileg dagskrá í boði.

Meira um þetta að móti loknu.


Tengdar færslur:

  1. Ædol Skátaleit
  2. Foringjaskipti hjá Rs. Asterix
  3. Rs. Asterix
  4. ROVERWAY 2009
  5. Rs. Trail

Þessi grein var skrifuð þann 23. júlí 2009 kl. 11:45 f.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.