júní 22nd, 2009 by Jón Þór Gunnarsson
Hraunbúinn Jakob Guðnason vann það afrek að synda til Viðeyjar á skátamót um síðustu helgi. Jakob synti á 19 mínútum.
Ætli Viðeyjarsund muni verða að svipuðum árlegum viðburði og Arnarfellshlaup? Þarf ekki Landnemi að setja nýjan besta tíma?
Flokkur: Almennt |
Engin svör »
júní 15th, 2009 by Smári Guðnason
Nú um helgina fór fram 69. Vormót Hraunbúa. Tæplega 90 þátttakendur voru á mótinu ásamt fjölda starfsmanna og annara í fjölskyldubúðum. Mótið heppnaðist mjög vel og var veðrið ekkert til að kvarta yfir. Mótsstjórn þakkar þátttakendum kærlega fyrir helgina því án ykkar hefði ekki verið neitt mót! Óskilamuni er hægt að nálgast í Hraunbyrgi, Hjallabraut 51 á skrifstofutíma.
Von er á myndum frá mótinu á næstunni.
Flokkur: Almennt |
Engin svör »
júní 8th, 2009 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Velferðarsjóður Barna hefur styrkt Útilífsskóla Hraunbúa um lækkun á þátttökugjöldum í sumar og lækkar hvert þátttökugjald um 3000 kr. Innifalið í styrknum er einnig ávaxtahressing fyrir börnin. Útilífsskóli Hraunbúa þakkar Velferðasjóði Barna kærlega fyrir þennan góða styrk og vonum við að þessi styrkur mundi nýtast fólki vel.
Flokkur: Almennt |
Engin svör »
júní 1st, 2009 by Smári Guðnason
Síðasti fundur Riddara var haldinn síðastliðinn þriðjudag. Farið var yfir Vormót og ættu allir að vera á fullu að undirbúa sig fyrir mótið. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi ferð Riddara á Vormótið, ekki hika við að hafa samband við sveitarforingja í síma 846 4578 eða senda tölvupóst á smari@hraunbuar.is
Flokkur: Almennt |
Engin svör »