Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

69. Vormót Hraunbúa

Skrifað af Smári Guðnason þann 27. maí 2009

Mótsmerki Vormóts 200969. Vormót Hraunbúa verður haldið í­ Krýsuví­k 12.-14. júní­ nk. og verður þema mótsins “Lífið er leikur”

Að venju verður mótið byggt upp á virkri þátttöku skátaflokkanna en boðið verður upp á skemmtilega pósta þar sem kennir ýmissa grasa.

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á rekka- og róverskátadagskrá, mikinn söng og skemmtun. Allir skátar sem koma á Vormót í­ Krýsuví­k koma til að upplifa, taka þátt, hafa frumkvæði, hitta aðra og umfram allt að njóta þess að vera brosandi með öðrum skátum.

Hátí­ðarkvöldvaka verður að venju á laugardagskvöldinu kl. 20 og kakó og kex á eftir og eru gamlir skátar og foreldrar sérstaklega velkomnir.

Svæðið verður opnað kl. 16 á föstudeginum og mótssetning verður kl. 20. Mótsslit verð á sunnudeginum kl. 16.

Skráning er hafin á http://vormot.hraunbuar.is

Vormótið á Facebook!Hátíðarvarðeldurinn á Facebook

Verð:
Almennur þátttakandi: 3500 kr.
Vinnubúðir (Rekka- og Róverskátar): 3500 kr. (hægt að sækja um 50% endurgreiðslu innan tveggja vikna frá mótsslitum)

Fjölskyldubúðir: 2500 kr. per tjald (miðað við 2 fullorðna)
Viðbótargjald fyrir 10 ára og eldri: 1500 kr.
Frítt fyrir 9 ára og yngri.

Innifalið í mótsgjaldi er öll dagskrá, tjaldsvæði, kvöldkaffi 2 kvöld, mótsbók og mótsmerki.


Tengdar færslur:

  1. Lífið er leikur – á Vormóti Hraunbúa
  2. Vormót Hraunbúa
  3. 70. Vormót Hraunbúa
  4. Skráning á Vormót 9. 12. júní 2005
  5. Vinnuferd fyrir Vormót

Þessi grein var skrifuð þann 27. maí 2009 kl. 5:38 e.h. og er skráð í flokkinn Sveitir, Viðburðir. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.