Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá maí, 2009

Útilífsskóli Hraunbúa

maí 29th, 2009 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir

Skráning í útilífsskóla er í fullum gangi og styttist í að námskeiðin byrja.

Upplýsingar má finna á heimsíðu útilífsskólans en þar er einnig hægt að skrá sig.

Einnig svörum við spurningum og tökum á móti skráningum í síma útilífsskólans
824-0906 eða senda tölvupóst á utilifsskoli.hraunbuar.is

Hlökkum til að sjá alla í Útilífsskólanum í sumar.usshringur

Flokkur: Almennt | Comments Off

69. Vormót Hraunbúa

maí 27th, 2009 by Smári Guðnason

Mótsmerki Vormóts 200969. Vormót Hraunbúa verður haldið í­ Krýsuví­k 12.-14. júní­ nk. og verður þema mótsins “Lífið er leikur”

Að venju verður mótið byggt upp á virkri þátttöku skátaflokkanna en boðið verður upp á skemmtilega pósta þar sem kennir ýmissa grasa.

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á rekka- og róverskátadagskrá, mikinn söng og skemmtun. Allir skátar sem koma á Vormót í­ Krýsuví­k koma til að upplifa, taka þátt, hafa frumkvæði, hitta aðra og umfram allt að njóta þess að vera brosandi með öðrum skátum.

Hátí­ðarkvöldvaka verður að venju á laugardagskvöldinu kl. 20 og kakó og kex á eftir og eru gamlir skátar og foreldrar sérstaklega velkomnir.

Svæðið verður opnað kl. 16 á föstudeginum og mótssetning verður kl. 20. Mótsslit verð á sunnudeginum kl. 16.

Skráning er hafin á http://vormot.hraunbuar.is

Vormótið á Facebook!Hátíðarvarðeldurinn á Facebook

Verð:
Almennur þátttakandi: 3500 kr.
Vinnubúðir (Rekka- og Róverskátar): 3500 kr. (hægt að sækja um 50% endurgreiðslu innan tveggja vikna frá mótsslitum)

Fjölskyldubúðir: 2500 kr. per tjald (miðað við 2 fullorðna)
Viðbótargjald fyrir 10 ára og eldri: 1500 kr.
Frítt fyrir 9 ára og yngri.

Innifalið í mótsgjaldi er öll dagskrá, tjaldsvæði, kvöldkaffi 2 kvöld, mótsbók og mótsmerki.

Flokkur: Sveitir, Viðburðir | Comments Off

Lokafundur Rauðskinna

maí 24th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Næsta þriðjudag verður síðasti fundur vetrarins hjá Rauðskinnum.

Við ætlum að klifra og hafa gaman í skemmunni og í lokin verða afhentar markmiðs- og viðburðarperlur fyrir vormánuðina og þær sem unnið hafa fyrir því fá ný Fálkaskátamerki til að sauma á klútinn sinn.

Vonandi sjá flestar sér fært að mæta og hafa gaman saman.

Kolfinna og Steinunn

Flokkur: Rauðskinnur | Comments Off

Tjaldasýning á Víðistaðatúni

maí 20th, 2009 by Smári Guðnason

Vantar þig tjald? Ef svo er, eða þig langar bara að skoða það sem er í boði, þá er vel þess virði að fara á tjaldasýningu sem verður dagana 21.-23. maí á Víðistaðastúni í Hafnarfirði, við Hraunbyrgi.

Kynnt verða norsk tjöld frá HELSPORT. Ef þú vilt fá sem bestar upplýsingar þá verða aðilar frá HELSPORT og Fjallakofanum á staðnum alla dagana klukkan 12-18 og örugglega hægt að gera góða kaup.

Flokkur: Almennt | Comments Off

Skyndihjálp

maí 13th, 2009 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Á fundinum í kvöld hjá Dróttskátum verður kennd skyndihjálp og er hún kennd inni.

Mæting er Stundvíslega kl 19:00 eins og venjulega og er Fundurinn búin kl 20:30

Hlökkum til að sjá ykkur

Ragga, Sverre og Dagný :)

Flokkur: Almennt | Comments Off

Hverahlíð

maí 4th, 2009 by Jón Þór Gunnarsson

Upplýsingar um Hverahlíð hafa nú verið uppfærðar. Bætt hefur verið við

  • Gönguferðum í nágreni
  • Færð á vegum
  • Myndum
  • Kortum
  • Fróðleiki frá Ferli
  • Gps hnitum
  • Leigusamningi og verð
Skoða má vefsíðu hverahlíðar undir Félagið -> Skátaskálinn hverahlíð eða með því að smella hér.

Flokkur: Almennt, Skálanefnd | 1 svar »