apríl 2nd, 2009 by Smári Guðnason
Á sunnudaginn hefst skátamótið IMWe (International creative workshop for scouts) í Þýskalandi. Tveir Hraunbúar – þeir Jakob Guðnason og Smári Guðnason halda til Þýskalands á morgun ásamt sjö öðrum Íslendingum og þar af er einn þeirra í undirbúningshópi fyrir mótið.
Á síðasta ári fóru 4 Hraunbúar á mótið, Einar Jón, Jón Þór, Jakob og Katrín Ýr. Ferðasöguna er að finna hér.
Einhverjar fréttir gætu komið á vefinn frá mótinu en að loknu móti mun birtast hér ferðasaga ásamt myndum.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
apríl 2nd, 2009 by Smári Guðnason
Skeytasalan er farin á fullt hjá okkur. Eins og undanfarin ár fara skátar með skeytin til fermingarbarnanna á fermingardaginn og óskum við því eftir áhugasömum einstaklingum til að taka þátt í þessu með okkur.
Félagar úr St. Georgsgildinu í Hafnarfirði aðstoða okkur með því að keyra skátana á milli staða og tekur útkeyrslan um klukkutíma. Miðast er við að hver skáti fari með allt að 10 skeyti. Mæting er kl. 17 þann dag sem sem útburðurinn er og mikilvægt að mæta í skátabúning.
Skáta vantar í skeytaútburð eftirtalda daga:
Sunnudagurinn 5. Apríl – 1 skáta
Fimmtudagurinn 9. Apríl – 4 skátar
Laugardagurinn 18. apríl – 3 skátar
Sunnudagurinn 19. apríl – 4 skátar
Fimmtudagurinn 23. apríl – 3 skátar
Sunnudagurinn 26. apríl – 2 skátar
Sunnudagurinn 3. maí – 1 skáti
Sunnudagurinn 10. maí – 2 skátar
Sunnudagurinn 7. Júní – 1 skáti
Þeir sem sjá sér fært að aðstoða okkur, hafið samband við Nönnu í s. 824 0906 eða á netfangið nanna@hraunbuar.is
Flokkur: Almennt |
Comments Off
apríl 1st, 2009 by Guðvarður Ólafsson
Hraunbúasjóðurinn óskar eftir því að umsóknir um styrki til Hraunbúasjóðsins fyrir sumarið berist sjóðnum í síðasta lagi 6. apríl 2009. Umsóknir skal senda skriflega á póstfangið: beggi (hjá) hraunbuar.is.
í skipulagsskrá Hraunbúasjóðsins segir svo í 10. grein:
“Skátafélagið Hraunbúar, svo og sveitir, flokkar eða einstaklingar innan Skátafélagsins Hraunbúa geta sótt um styrk til afmarkaðra verkefna, t.d. námskeiða eða ferðalaga, tækja og húsbúnaðarkaupa eða hvers annars sem til þess er fallið að glæða áhuga á skátastarfinu í Hafnarfirði, efla það og bæta, eða auka á fjölbreyttni skátastarfsins”
Reiknignsnúmer sjóðsins er 0140-15-375606 og kennitala sjóðsins er 560606-0790 fyrir þá sem hafa áhuga á að leggja honum lið og efla þar með skátastarf í Hafnarfirði.
Flokkur: Almennt |
Comments Off