Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sumardagurinn fyrsti

Skrifað af Smári Guðnason þann 22. apríl 2009

Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur með pomp og prakt og að venju spila Hraunbúar stórt hlutverk í hátíðarhöldunum hér í bæ. Skáta- og blómamessa hefst í Víðistaðakirkju kl. 13 og að henni lokinni, eða um kl 13:45 mun fánaborg Hraunbúa leiða skrúðgöngu niður á Thorsplan. Þar tekur við skemmtidagskrá á sviðinu sem skátafélagið sér um og einnig verður á svæðinu ýmis skátadagskrá s.s. klifurveggur, andlitsmálun, sumarleikir og poppað yfir opnum eldi. Dagskráin á Thorsplani stendur frá 14:15-15:30.

Að sjálfsögðu fjölmenna Hraunbúar í skrúðgönguna og munu sveitirnar stilla sér upp fyrir aftan lúðrasveitina og er því mikilvægt að sem flestir mæti.


Tengdar færslur:

  1. Sumardagurinn fyrsti
  2. Sumardagurinn fyrsti – fjáröflun
  3. Sumardagurinn fyrsti – dagskrá
  4. Skógar og Útivistardagur Fjölskyldunnar
  5. Sumardagurinn fyrsti í Hafnarfirði

Þessi grein var skrifuð þann 22. apríl 2009 kl. 1:07 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.