Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Greinar frá apríl, 2009

Lífið er leikur – á Vormóti Hraunbúa

apríl 25th, 2009 by Smári Guðnason

Mótsmerki Vormóts 200969. Vormót Hraunbúa verður haldið í­ Krýsuví­k 12.-14. júní­ nk. og verður þema mótsins “Lífið er leikur”

Að venju verður mótið byggt upp á virkri þátttöku skátaflokkanna en boðið verður upp á skemmtilega pósta þar sem kennir ýmissa grasa.

Eins og undanfarin ár verður boðið upp á rekka- og róverskátadagskrá, mikinn söng og skemmtun. Allir skátar sem koma á Vormót í­ Krýsuví­k koma til að upplifa, taka þátt, hafa frumkvæði, hitta aðra og umfram allt að njóta þess að vera brosandi með öðrum skátum.

Hátí­ðarkvöldvaka verður að venju á laugardagskvöldinu kl. 20 og kakó og kex á eftir og eru gamlir skátar og foreldrar sérstaklega velkomnir.

Svæðið verður opnað kl. 16 á föstudeginum og mótssetning verður kl. 20. Mótsslit verða á sunnudeginum kl. 16.

Skráning er hafin á http://vormot.hraunbuar.is

Vormótið á Facebook!Hátíðarvarðeldurinn á Facebook

Lesa alla frétt »

Flokkur: Skátamót | Engin svör »

Hraunbúadagurinn

apríl 24th, 2009 by Smári Guðnason

Laugardagur, 25. apríl 2009
10:00 f.h.to4:00 e.h.

Á morgun laugardag ætlum við í Hraunbúum að gera okkur glaðan dag. Öllum skátum í félaginu verður þá boðið að mæta í skemmtilega dagskrá frá kl. 10-14 og frá 14-16 munu fálkaskátar og eldri keppa í áskorunarkeppni Hraunbúa. Dagskránni lýkur svo kl. 16. Meðal dagskrárliða er kanósigling, skátakappleikir, brennimerking, klifur og fleira. Að loknum póstaleik verður haldin lítil “kvöldvaka”. Við hvetjum alla til að mæta og er mjög mikilvægt að mæta klæddur eftir veðri. Hádegismatur verður í boði fyrir þá sem taka þátt.

Flokkur: Viðburðir | Engin svör »

Hraunbúadagur

apríl 24th, 2009 by Smári Guðnason

Á morgun laugardag ætlum við í Hraunbúum að gera okkur glaðan dag. Öllum skátum í félaginu verður þá boðið að mæta í skemmtilega dagskrá frá kl. 10-14 og frá 14-16 munu fálkaskátar og eldri keppa í áskorunarkeppni Hraunbúa. Dagskránni lýkur svo kl. 16. Meðal dagskrárliða er kanósigling, skátakappleikir, brennimerking, klifur og fleira. Að loknum póstaleik verður haldin lítil “kvöldvaka”. Við hvetjum alla til að mæta og er mjög mikilvægt að mæta klæddur eftir veðri. Hádegismatur verður í boði fyrir þá sem taka þátt.

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Sumardagurinn fyrsti

apríl 22nd, 2009 by Smári Guðnason

Sumardagurinn fyrsti verður haldinn hátíðlegur með pomp og prakt og að venju spila Hraunbúar stórt hlutverk í hátíðarhöldunum hér í bæ. Skáta- og blómamessa hefst í Víðistaðakirkju kl. 13 og að henni lokinni, eða um kl 13:45 mun fánaborg Hraunbúa leiða skrúðgöngu niður á Thorsplan. Þar tekur við skemmtidagskrá á sviðinu sem skátafélagið sér um og einnig verður á svæðinu ýmis skátadagskrá s.s. klifurveggur, andlitsmálun, sumarleikir og poppað yfir opnum eldi. Dagskráin á Thorsplani stendur frá 14:15-15:30.

Að sjálfsögðu fjölmenna Hraunbúar í skrúðgönguna og munu sveitirnar stilla sér upp fyrir aftan lúðrasveitina og er því mikilvægt að sem flestir mæti.

Flokkur: Almennt | Engin svör »

Næsti Rauðskinnufundur

apríl 19th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir

Við viljum minna Rauðskinnur á að á næsta fundi verður tónlistarþema, svo ef þið spilið á hljóðfæri sem auðvelt er að ferðast með milli húsa þá væri mjög gaman ef þið gætuð komið með það á fundinn til að sýna okkur.

Sjáumst á þriðjudaginn,

Kolfinna og Steinunn

P.S. Takk fyrir vel skipulagðan fund í síðustu viku Ingibjörg og Karen, þið stóðuð ykkur mjög vel!

Flokkur: Rauðskinnur | Engin svör »

26 stiga hiti í Burg Rieneck

apríl 7th, 2009 by Smári Guðnason

Smá fréttir af okkur á IMWe. Það er komið að þriðja degi mótsins allt komið í fullan gír. Jakob er í fréttablaðssmiðju mótsins og Smári í Cajon smiðju þar sem hann býr til Cajon trommu.

Veðrið er búið að leika við okkur frá upphafi og þegar þetta er skrifað er 20-26 stiga hiti í kastalagarðinum en sem betur fer verður það ekki svoleiðis restina af mótinu!

Kveðja frá IMWe,
Smári

Flokkur: Erlendir viðburðir, Skátamót | Engin svör »