mars 16th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Við viljum minna Rauðskinnur á það að skráning í útileguna í Hverahlíð 27.-29.mars er hafin og stendur til 24.mars, hægt er að skrá sig í Hraunbyrgi og hjá sveitaforingja.
Verðið að þessu sinni er 2000 krónur, en best er að ganga frá greiðslunni um leið og skráning fer fram, eða í síðasta lagi á fundinum 24.mars. Innifalið í verðinu er allur matur nema morgunmatur, svo stelpurnar þurfa að koma með hann sjálfar fyrir báða dagana.
Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband (Kolfinna: s.8465685, kolfinna(hjá)hraunbuar.is)
Sjáumst á fundinum á morgun,
Sveitaforingjar
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 11th, 2009 by Gunnur Líf Gunnarsdóttir
Fyrir tveimur vikum síðan lögðu litlir drekaskátar af stað í leiðangur. Það var mikil rigning og mikið rok en drekaskátarnir létu það ekki á sig fá. Í kringum Hraunbyrgi trítluðu þeir með poka í annarri hendi fyrir rusl og hina hendina lausa ef þeir skyldu nú rekast á flottan stein. Stein sem gæti verið þeirra óskasteinn. Eftir mikla leit fundu allir skátarnir óskasteinanna sína. Í leiðinni var búið að tína upp allt rusl sem fyrir fannst í kringum skátaheimilið og næsta nágrenni. Góðverk frá drekaskátunum til Hafnafjarðarbæjar :). Þegar allir voru svo komnir inn heilir að húfi var hitað heitt skátakakó.
Vika leið í næsta fund. Foringjar Drekaskátanna voru búnir að passa óskasteinana afskaplega vel á þeim tíma. Nú var komið að því að láta óskasteinunum líða vel. Til þess var notuð ull. Þæfðu skátarnir ull í kringum steininn sinn og á meðan það var gert mátti aðeins hugsa góðar hugsanir. Með mikilli vinnu og einbeitingu náðu allir drekaskátarnir að þæfa ull í kringum steinninn sinn og gera hann svaka flottan. Síðan valdi hver og einn hvaða ósk ætti að fara á steininn. Þær voru skrifaðar niður og geymdar á góðum stað.
Önnur vika leið þanngað til að óskasteinarnir fóru að gegna hlutverki sínu. Á síðasta fundi voru steinarnir hengdir upp í glugga drekaskátaherbergisins með óskina í bandi.
Öruggar heimildir eru fyrir því að tvær óskir hafa nú þegar ræst.
Kær kveðja
Gunnur og Sunna
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 10th, 2009 by Nanna Guðrún Bjarnadóttir
Útilífsskóli Hraunbúa leitar að hæfu fólki í sumarvinnu:
- Leiðbeinanda, umsækjandi skal vera 18 ára eða eldri.
- Aðstoðar leiðbeinanda, umsækjandi skal vera 16 – 17 ára.
Umsækjandi skal vera skáti eða komið nálægt skátastarfi.
Nánari upplýsingar fást hjá Nönnu Guðrúnu í síma 823-5028 eða tölvupósti á nanna@hraunbuar.is
Umsókn skal senda með tölvupósti á nanna@hraunbuar.is og umsóknir skulu berast í síðasta lagi 30. mars 2009.
Flokkur: Almennt |
Comments Off
mars 8th, 2009 by Kolfinna Snæbjarnardóttir
Á fundinum næsta þriðjudag ætlum við að mála trölladeigið sem við föndruðum svo flotta hluti úr um daginn. Svo ef til eru svartir ruslapokar þá væri gott ef hver stúlka gæti komið með einn slíkann til að klæðast á fundinum, til að forðast málningaslettur í föt. Ef ekki þá björgum við því.
Einnig viljum við minna á útilegu Rauðskinna í Hverahlíð helgina 27.-29.mars næstkomandi. Kostnaður og frekari dagskrá verða auglýst síðar.
Sjáumst á þriðjudaginn,
Kolfinna og Steinunn
Flokkur: Rauðskinnur |
Comments Off
mars 4th, 2009 by Ragnheiður Guðjónsdóttir

Matarfundur er hjá dróttskátum í kvöld og ætlum við að elda hakk og spaghetti.
Mæting er kl 19:00 stundvíslega eins og vanalega :)
kv. Ragga, Dagný og Sverre Sveitaforingjar :)
Flokkur: Ds. Castor |
Comments Off
mars 3rd, 2009 by Smári Guðnason
Á fundinum í dag verður farið út í snjóinn og er því mikilvægt að allir mæti klæddir eftir veðri.
Strákarnir mega mæta með snjóþotu eða sleða. Sveitarforingjar munu útvega þeim sem ekki geta mætt með snjóþotu eða sleða svartan ruslapoka til að renna sér á.
Kv. Sveitarforingjar
Flokkur: Riddarar |
Comments Off