Inspired by Iceland

Skátafélagið Hraunbúar

fyrir hafnfirska æsku

Sveitarútilega Riddara

Skrifað af Smári Guðnason þann 31. mars 2009

Helgina 17. – 19. Apríl nk.ætla Riddarar að fara í útilegu í Vífilsbúð í Heiðmörk. Vífilsbúð er í eigu skátafélagsins Vífils í Garðabæ. Á staðnum er kamar, rafmagn, ísskápur og ýmislegt fleira. Mæting verður í skálann kl. 20 og er mjög mikilvægt að allir mæti saddir.

 

Dagskrá
Mæting er í Vífilsbúð kl. 20:00 á föstudeginum – mikilvægt að allir séu búnir að borða kvöldmat.
Útilegunni lýkur kl 15:00 á sunnudeginum og eru foreldrar beðnir um að sækja krakkana sína þá í Vífilsbúð.
Farið verður í hellaferð á laugardeginum og er því mikilvægt að allir mæti með hjálm.

Kostnaður
Útilegugjald er 3.500 kr. Innifalið í því er gistingin í Vífilsbúð, öll dagskrá, hádegismatur báða dagana og kaffitími, kvöldmatur og kvöldkaffi á laugardeginum. Skráning fer fram hjá sveitarforingja (smari@hraunbuar.is) og hægt er að greiða með því að greiða á skrifstofu Hraunbyrgis eða millifæra á reikning nr. 0327-26-7029, kt. 640169-7029 (þeir sem gera það eru vinsamlegast beðnir um að láta senda tilkynningu á netfangið smari@hraunbuar.is ). Skráningarfrestur rennur út þriðjudaginn 14. apríl. Athugið að strákarnir þurfa sjálfir að koma með morgunmat.

Útbúnaður
Meðfylgjandi þessu bréfi er almennur útbúnaðarlisti, sem gott er að geyma og hafa til viðmiðunar. Sérstaklega er mikilvægt að strákarnir komi með hlý föt og góða skó til að ganga í. Ekki er ætlast til þess að strákarnir komi með sælgæti eða gos.

Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
Smári Guðnason, s: 846-4578, smari@hraunbuar.is

 

 

Leiðarlýsing
Leiðarlýsing: Best er að keyra Kaldárselsveginn og beygja þaðan inná Elliðavatnsveg (Flóttamannaleiðina) og halda þar áfram þar til komið er að Heiðmerkurvegi (hjá Maríuhellum). Beygt er inn á Heiðmerkurveginn og haldið áfram þar til komið er að grillaðstöðunni.
Útbúnaðarlisti
 Bakpoki
 Svefnpoki
 Koddi
 Náttföt
 Inniskór
 Skátabúningur
 Buxur
 Bolir
 Peysur
 Sokkar
 Ullarsokkar
 Nærföt
 Húfa
 Vettlingar
 Trefill
 Úlpa / stakkur
 Hlífðarbuxur
 Lítill bakpoki
 Hitabrúsi
 Vasahnífur
 Vasaljós
 Hike nesti (hreint súkkulaði)
 Morgunmatur
 Tannbursti
 Tannkrem
 Bursti/greiða
 Þvottapoki
 Klósettpappír
 Einstaklingsbundin lyf

Óæskilegt að hafa með sér…

 Gallabuxur
 Bómullarsokkar
 GSM-símar
 Rafmagnstæki
 Nammi, gos og snakk

 

 


 

 


Tengdar færslur:

  1. Sveitarútilega Riddara
  2. Dróttskátaútilegur
  3. Dróttskátar athugið!
  4. Sveitarútilega Riddara
  5. Útifundur hjá Riddurum

Þessi grein var skrifuð þann 31. mars 2009 kl. 8:06 e.h. og er skráð í flokkinn Almennt, Viðburðir. Þú getur nálgast öll svör við grein í gegnum RSS 2.0 lista. Hvorki svör né ping eru leyfð.

Lokað er fyrir svör.